Tekjur Arnarlax jukust um 114 prósent

Laxeldi Arnarlax í eigu Icelandic Salmon.
Laxeldi Arnarlax í eigu Icelandic Salmon. Ljósmynd/Icelandic Salmon

Rekstr­ar­tekj­ur Icelandic Salmon, móður­fyr­ir­tæki lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arn­ar­lax, á fyrsta árs­fjórðungi árs­ins voru 114 pró­sent hærri en á sama árs­fjórðungi í fyrra.

Icelandic Salmon kynnti árs­fjórðungs­upp­gjörið sitt í beinu streymi til fjár­festa í morg­un. Rekstr­ar­tekj­ur fjórðungs­ins námu 37,1 millj­ón evra (5,2 millj­arðar ís­lenskra króna) en þær voru 17,3 millj­ón­ir evra (2,4 millj­arðar króna) á fyrsta fjórðungi árs­ins 2021.

Árang­ur­inn þakkaði Björn Hembre, for­stjóri Icelandic Salmon, hækk­andi verðlagi og góðrar líf­fræðilegra aðstæðna. Fram­leiðsla jókst um níu hundruð tonn ef miðað er við fyrsta árs­fjórðung síðasta árs.

Icelandic Salmon er skráð í Euronext-hluta­bréfa­markaðinn í kaup­höll­inni í Ósló.

mbl.is