Eydís eini báturinn með hákarl á strandveiðum

Eydís NS hefur komið með tæpt tonn af hákarli að …
Eydís NS hefur komið með tæpt tonn af hákarli að landi. Ljósmynd/Arnbjörn Eiríksson

Það sem af er strandveiðitímabilinu, hefur verið landað 1.161 tonni (óslægt) í 1.669 löndunum. Það gerir meðalafla í hverri veiðiferð upp á 695,7 kíló. Alls hafa 510 bátar landað afla í strandveiðunum hingað til, samkvæmt skráningu Fiskistofu.

Alls hafa strandveiðibátar landað 1.054 tonnum af þorski, 1,5 tonni af ýsu og 100 tonnum af ufsa. Jafnframt hafa fengist 4,3 tonn af karfa, 106 kíló af löngu og 300 kíló af steinbít.

Athygli vekur að í skráningu Fiskistofu yfir strandveiðiafla kemur fram, að 978 kíló af hákarli hafi verið landað. Einn bátur náði þessum afla, þ.e. strandveiðibáturinn Eydís NS sem gerður er út frá Borgarfirði eystra. Það gæti verið um fleiri en einn hákarl að ræða þar sem algengasta stærð er um 400 kíló og 2,5 til 5 metrar að lengd, en þeir geta orðið allt að 1.200 kíló og 6,5 metra að lengd.

Þá hafa veiðst 2,3 tonn af grásleppu sem meðafli, samkvæmt skráningu Fiskistofu.

Hér var upphaflega rætt um að hákarlar væru yfirleitt ekki þyngri en 400 kíló. Það er ekki rétt og hefur fréttin verið leiðrétt með tilliti til þess.

mbl.is