Fyrstu seiðin í kví Háafells í Skötufirði

Papey ÍS losar fyrstu laxaseiðin í kví Háafells í Skötufirði.
Papey ÍS losar fyrstu laxaseiðin í kví Háafells í Skötufirði. Ljósmynd/Hraðfrystihús Gunnvarar

Fyrstu laxa­seiði Háa­fells voru sett í kví­ar í Skötuf­irði á mánu­dag. Seiði í kví­arn­ar eru flutt með brunn­bátn­um Papey ÍS frá seiðaeld­is­stöð Háa­fells á Nauteyri og hafa flutn­ing­ar gengið vel, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef móður­fé­lags­ins, Hraðfrysti­húss Gunn­var­ar í Hnífs­dal.

Fram kem­ur að unnið hafi verið að því að hefja eldið í rúm­an ára­tug en Háa­fell sótti fyrst um leyfi fyr­ir lax­eldi í Ísa­fjarðar­djúpi árið 2011. “Upp­bygg­ing á lax­eldi í Ísa­fjarðar­djúpi mun auka byggðafestu, fjölga at­vinnu­tæki­fær­um og stuðla að blóm­legra mann­lífi. Auk seiðaeld­is á Nauteyri er Háa­fell því nú með lax­eldi í sjókví­um í Skötuf­irði og regn­bogasil­ung við Bæja­hlíð,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Ein­ar Val­ur Kristjáns­son, stjórn­ar­formaður Háa­fells, kveðst á þess­um tíma­mót­um fyrst og fremst hugsa til þeirra, sem hafa unnið að því að koma verk­efn­inu af stað. „Þau eiga öll þakk­ir skild­ar. Stóra verk­efnið fram und­an er að gæta að auðlind­inni Ísa­fjarðar­djúpi og tryggja gott heil­brigðis­ástand í Djúp­inu. Það verður best gert með því að tryggja fjar­lægðarmörk milli eld­is­svæða, með skýr­um regl­um, aðgæslu og vel þjálfuðu starfs­fólki. Það hafa marg­ir hags­muna að gæta í Djúp­inu og ef vel er á spil­um haldið, eiga þeir vel að geta farið sam­an,“ er haft eft­ir Ein­ari Val í til­kynn­ing­unni.

Einar Valur Kristjánsson segir stór verkefni framundan.
Ein­ar Val­ur Kristjáns­son seg­ir stór verk­efni framund­an. Ljós­mynd/​Hall­dór Svein­björns­son
mbl.is