Styrktu stofnanir og samtök um 48,4 milljónir

Verksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Fyrritækið hefur veitt stofnunum og samtökum …
Verksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Fyrritækið hefur veitt stofnunum og samtökum veglega styrki á síðasta ári. Ljósmynd/Guðlaugur B. Birgisson

Stofnanir og félagasamtök hlutu 48,4 milljónir í styrki frá Síldarvinnslunni á þeim svæðum sem starfsmei fyrirtæksins fer fram á síðasta ári. „Síldarvinnslan hefur ávallt lagt áherslu á að vera virkur þátttakandi í þeim samfélögum sem hún hefur starfsemi í og taka þátt í uppbyggingu þeirra,“ segir í færslu á vef fyrirtækisins.

Fram kemur að árinu 2021 var 23,4 milljónum króna ráðstafað í styrki til æskulýðs- og íþróttafélaga, 70,1 milljón til menningarmála, 6,6 milljónir til heilbrigðismála, 4 milljónir til björgunarsveita, 3,8 milljónir til menntamála og 2,1 milljón til félagasamtaka af ýmsum toga. Fyrirtækið styrkti stjórnmálaflokka um 1,5 milljón.

„Áhersla hefur verið lögð á að styrkja Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað til tækjakaupa og eins hefur Verkmenntaskóli Austurlands fengið að njóta framlaga til kaupa á ýmsum kennslubúnaði. Síldarvinnslan vill leggja áherslu á að efla nærumhverfið með fjölbreyttum hætti og fyrir liggur að efling þess kemur fyrirtækinu og starfsfólki þess ávallt til góða,“ segir í færslunni.

mbl.is