Bjarni Sæmundsson vaktar ástand sjávar

Fjöldi sýna eru tekin og greind á vorleiðangri.
Fjöldi sýna eru tekin og greind á vorleiðangri. Ljósmynd/HAfrannsóknastofnun/Svanhildur Egilsdóttir

Rann­sókn­ar­skipið Bjarni Sæ­munds­son lagði frá bryggju á mánu­dag og hélt í ár­leg­an vor­leiðang­ur Haf­rann­sókna­stofn­un­ar og er hann  liður í lang­tíma­vökt­un á ástandi sjáv­ar, nær­ing­ar­efn­um, gróðri og átu í haf­inu um­hverf­is Ísland.

Í leiðangr­in­um er ástand kannað á föst­um sniðum út frá land­inu, en auk þess eru gerðar mæl­ing­ar með sír­it­andi mæli­tækj­um á sigl­inga­leið skips­ins. Þá er magn og út­breiðsla ljósátu mæld með berg­máls­tækni og ljósátu­sýni skoðuð.

Fram kem­ur á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að árs­ferðis­rann­sókn­ir á þessu sviði hafa farið fram í kring­um maí og júní í um 60 ár.

Fjöldi sýna

Sýn­um verður einnig safnað fyr­ir Geislavarn­ir rík­is­ins vegna vökt­un­ar á magni geisla­virkra efna í sjó. Tek­in verða upp hlust­un­ar­dufl djúpt út af Langa­nesi og Krossa­nesi vegna rann­sókn­ar á at­ferli anda­nefja og annarra hvala en það verk­efni er á veg­um vís­inda­manna við Há­skóla Íslands.

Jafn­framt eru tek­in sýni á völd­um stöðum til grein­inga á erfðarefni svifþör­unga í vatns­boln­um og set­kjarn­ar sótt­ir frá botn­in­um og er verk­efnið hluti rann­sókna­sam­starfs Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla og ís­lenska rík­is­ins sem efnt var til, til heiðurs Mar­gréti Þór­hildi drottn­ingu Dana og Vig­dísi Finn­boga­dótt­ur for­seta.

Hitt rann­sókna­skip Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, Árni Friðriks­son, er stadd­ur djúpt aust­ur af land­inu, en skipið er að safna upp­lýs­ing­ar um magn og út­breiðslu norsk-ís­lenskr­ar síld­ar og annarra upp­sjáv­ar­teg­unda.

mbl.is