Eigendur Arnarlax og Arctic Fish hyggja á samruna

Norskir eigendur Arnarlax og Arctic Fish á Vestfjörðum stefna að …
Norskir eigendur Arnarlax og Arctic Fish á Vestfjörðum stefna að sameiningu. Ljósmynd/Icelandic Salmon

Tvö stærstu fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in á Vest­fjörðum, Arn­ar­lax og Arctic Fish, verða í eigu sama norska fyr­ir­tæk­is eft­ir að eig­end­ur þeirra hafa ákveðið að sam­ein­ast. Áætluð fram­leiðsla fyr­ir­tækj­anna á þessu ári nem­ur sam­an­lagt 26.600 tonn­um af eld­islaxi.

Norweg­i­an Royal Salmon (NRS), sem er eig­andi Arctic Fish, og SalM­ar, eig­andi Arn­ar­lax í gegn­um eign­ar­halds­fé­lagið Icelandic Salmon, til­kynntu norsku kaup­höll­inni í dag um áform sín um að sam­ein­ast. Þá mun samrun­inn verða fram­kvæmd­ur á þeim grund­velli að SalM­ar er kaup­andi allra hluta í NRS og eru greidd­ir 0,369 hlut­ir í SalM­ar fyr­ir hvern hlut í NRS.

Samrun­inn er þó háður nokkr­um skil­yrðum og má þar nefna að gengið verður frá kaup­um NRS á SalmoN­or, dótt­ur­fé­lagi SalM­Ar, og að skil­yrðum fyr­ir til­boði SalM­ar í hluta­fé NTS ASA (eig­enda NRS).

„Samn­ingsaðilarn­ir eiga nokkra hags­muni í at­vinnu­líf­inu sem skar­ast, bæði í Nor­egi, á Vest­fjörðum á Íslandi og í út­hafs­rekstri. Sam­ein­ing aðila ger­ir kleift að ná veru­leg­um sam­legðaráhrif­um,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni. Um áhrif­in á Íslandi seg­ir að mik­il tæki­færi fel­ist í samrun­an­um til að bæta rekst­ur­inn og er meðal ann­ars nefnd sam­eig­in­leg upp­bygg­ing þjón­ustu á sjó og á landi, svo sem í sam­bandi við seiðaeldi, vinnslu og sölu.

Um langt skeið hef­ur Arn­ar­lax og Arctic Fish átt í sam­starfi og mun það því halda áfram. Lengi hef­ur verið rætt um hugs­an­leg­an samruna fyr­ir­tækj­anna. Ekk­ert ligg­ur þó fyr­ir í til­kynn­ing­unni um samruna rekst­urs fyr­ir­tækj­anna á Vest­fjörðum.

mbl.is