Nýr strandveiðibátur til Grindavíkur

Nýr Cleopatra 31 hefur verið afhentur. Verður báturinn gerður út …
Nýr Cleopatra 31 hefur verið afhentur. Verður báturinn gerður út frá Grindavík. Ljósmynd/Trefjar

Útgerðarmaðurinn Alexander John Polson fékk nýverið afhentan nýjan Cleopatra 31 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Alexander, sem áður var meðeigandi útgerðar á Hjaltlandseyjum sem stundaði uppsjávarveiðar, verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem gerður er út frá Grindavík, að því er fram kemur í tilkynningu frá Trefjum.

Þar segir að nýi báturinn hefur fengið nafnið Research og er 9,6 metrar að lengd og 8,5 brúttótonn. Báturinn verður á strandveiðum og eru um borð handfærarúllur eru frá DNG. Aðbúnaður er líklega með því besta sem gerist í strandveiðibát og er stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða í brúnni.  Í lúkar eldunaraðstaða og svefnpláss er fyrir tvo í lúkar.

Siglingatækin um borð eru af gerðinni JRC frá Sónar ehf. en aðalvél bátsins er af gerðinni FPT N67 420hö tengd ZF286IV gír. Þá er hann búinn vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Lest bátsins rúmar alls tólf 380 lítra fiskikör.  

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Báturinn hefur þegar hafið veiðar.

mbl.is