Síldarvinnslan kaupir þriðjungshlut í Arctic Fish

Síldarvinnslan ehf. kaupir rúmlega þriðjungshlut í Arctic Fis Holding AS.
Síldarvinnslan ehf. kaupir rúmlega þriðjungshlut í Arctic Fis Holding AS. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Síld­ar­vinnsl­an hf. hef­ur keypt 34,2% hlut í norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish Hold­ing AS. Gerðu Síld­ar­vinnsl­an og Bremesco Hold­ing Lim­ited sam­komu­lag ásamt hópi hlut­hafa. Kaup­verðið var rúm­ur einn millj­arður norskra króna, eða sem nem­ur um 13,7 millj­örðum ís­lenskra króna.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Síld­ar­vinnsl­unni.

Leiðandi lax­eld­is­fyr­ir­tæki hér­lend­is

Arctic Fish Hold­ing er skráð í Euronext Growth Mar­ket í Osló og á 100% hluta­fjár í Arctic Fish ehf. en það fé­lag rek­ur eld­is­stöðvar á Vest­fjörðum og er þar af leiðandi mjög virkt af þeim lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um sem eru hér á landi. 

„Lax­eldi er ört vax­andi at­vinnu­grein sem við höf­um fylgst með á und­an­förn­um árum. Aukið fjár­magn og þekk­ing hef­ur komið inn í grein­ina á síðustu árum og við telj­um vera mik­il tæki­færi til staðar,“ er haft eft­ir Gunnþóri Ingva­syni, for­stjóra Síld­ar­vinnsl­unn­ar, í til­kynn­ingu.

„Við kaup­um rúm­lega þriðjungs­hlut í Arctic Fish Hold­ing AS, sem er í meiri­hluta­eigu norsks fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is þar sem er mik­il þekk­ing og reynsla í grein­inni. Við fögn­um því að fá tæki­færi til að vinna með þeim við efl­ingu fé­lags­ins.

Fé­lagið hef­ur metnaðarfull áform og hef­ur verið í mikl­um fjár­fest­inga- og upp­bygg­ing­ar­fasa á síðustu árum. Við sjá­um tæki­færi í auknu sam­starfi fisk­eld­is­fyr­ir­tækja á svæðinu.“

mbl.is