Kaupa flokkunar- og pökkunarlínu frá Micro

Létt var yfir þeim Stein Ove Tveiten, forstjóra Arctic Fish, …
Létt var yfir þeim Stein Ove Tveiten, forstjóra Arctic Fish, og Gunnar Óli Sölvason, framkvæmdastjóra Micro, við undirritun samninganna á sjávarútvegssýningunni. Ljósmynd/Micro

Micro ehf. í Hafnar­f­irði hef­ur gengið frá samn­ingi við Arctic Fish ehf. um sölu, fram­leiðslu og upp­setn­ingu á flokk­un­ar- og pökk­un­ar­línu fyr­ir nýtt laxaslát­ur­hús Arctic Fish sem er að rísa í Bol­ung­ar­vík. Und­ir­rit­un samn­inga fór fram á Íslensku sjáv­ar­út­vegs­sýn­ing­unni í Fíf­unni í Kópa­vogi á síðasta degi henn­ar, á föstu­dag.

Kerfið bygg­ist á hönn­un og hug­viti frá Micro og er eitt það full­komn­asta og af­kasta­mesta sem sett hef­ur verið upp hér á landi,“ seg­ir í frétta­til­kynn­ingu. Fram kem­ur að stefnt sé að því að hefja upp­setn­ingu á búnaðinum í fe­brú­ar á næsta ári og stefnt er á að hann verði tek­inn í notk­un á fyrsta árs­fjórðungi 2023 þegar hin nýja aðstaða Arctic Fish verður opnuð.

„Þetta er afar mik­il­væg­ur samn­ing­ur fyr­ir okk­ur og staðfest­ir að við erum í fremstu röð þegar kem­ur að hönn­un og fram­leiðslu á flokk­un­ar- og pökk­un­ar­kerf­um fyr­ir heil­an fisk. Það er mik­il viður­kenn­ing fyr­ir Micro að hafa orðið hlut­skarp­ast­ir í útboði sem Arctic Fish stóð fyr­ir. Þetta er viðamikið verk­efni og mikl­ar kröf­ur sem gerðar eru til flokk­un­ar á heil­um fiski og pökk­un. Kröf­ur um rekj­an­leika og að kerfið sé þrif­vænt. Það er mik­il hug­búnaðar­vinna að baki þess­ari hönn­un og mun hún nýt­ast við fjöl­mörg önn­ur verk­efni sem við erum með í píp­un­um.

Fyr­ir­tækið Micro hef­ur tekið mörg og stór skref upp á síðkastið og það er frá­bært að fyrsti samn­ing­ur­inn skuli vera í höfn. Það er staðfest­ing á að við erum að réttri leið,“ seg­ir Gunn­ar Óli Sölva­son, fram­kvæmda­stjóri Micro.

Mik­il af­köst í nýju húsi

Kerfið frá Micro bygg­ist á því að lax­inn er flutt­ur frá kælitanki að inn­möt­un­ar­stöð þar sem hann er gæðamet­inn. Hver fisk­ur fær gæðamerki sem fylg­ir hon­um í gegn­um allt kerfið. Lax­inn fer svo að vigt­arein­ingu, þar sem þyngd­in bæt­ist við gæðamerkið. Lax­inn er flokkaður í sjálf­virk­um pökk­un­ar­flokk­ara eft­ir gæðum og þyngd og bún­ir eru til skammt­ar. Pökk­un­ar­flokk­ar­inn set­ur skammt­inn í kassa sem einnig hef­ur verið vigtaður inn í kerfið. Kass­inn fær límmiða með öll­um upp­lýs­ing­um um vör­una. Að lok­um fær hver kassi vigtaðan ís­skammt, áður en hon­um er lokað.

„Búnaður­inn frá Micro er af­skap­lega spenn­andi og mun hjálpa okk­ur að auka arðsemi fyr­ir­tæk­is­ins. Mik­il tækniþróun hef­ur orðið á þessu sviði á síðustu árum og er ljóst að þar er Micro í fremstu röð. Við fögn­um þess­um samn­ingi þar sem mun tryggja mik­il af­köst í nýja laxaslát­ur­hús­inu sem nú er í bygg­ingu í Bol­ung­ar­vík. Laxaslátrun er mik­il­væg­ur þátt­ur í virðiskeðju okk­ar og því áríðandi að sá búnaður sem þar verður sett­ur upp sé af­kasta­mik­ill og öfl­ug­ur. Þar hef­ur Micro staðist all­ar kröf­ur sem við ger­um,“ seg­ir Stein Ove Tveiten, for­stjóri Arctic Fish.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: