„Ekki í samræmi við aflabrögð og upplifun sjómanna“

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátasjómanna, segir ráðgjöf HAfrannsóknastofnunar fyrir þorsk …
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátasjómanna, segir ráðgjöf HAfrannsóknastofnunar fyrir þorsk vera vonbrigði. mbl.is/Golli

„Þetta eru mik­il von­brigði varðandi þorskinn og ekki í neinu sam­ræmi við afla­brögð og upp­lif­un sjó­manna á miðunum,“ seg­ir Örn Páls­son, fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda, um ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar fyr­ir næsta fisk­veiðiár.

Á kynn­ing­ar­fundi stofn­un­ar­inn­ar, sem fram fór í húsa­kynn­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að Fornu­búðum í Hafnar­f­irði í gær, var lagt til að afla­mark í þorski verði skert um 13.527 tonn fyr­ir næsta fisk­veiðiár sem hefst 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Grát­legt

Hugs­an­lega er um að ræða þorskafla að verðmæti 5,2 millj­arða króna miðað við meðal­verð á óslægðum þorski á inn­lend­um fisk­mörkuðum síðustu 30 viðskipta­daga. „Það hvað við meg­um veiða af þorski er stærsti þátt­ur­inn í lífs­kjör­um þjóðar­inn­ar,“ full­yrðir Örn.

Hann seg­ir skerðing­una í al­gjörri mót­sögn við afla­brögð. Máli sínu til stuðnings bend­ir hann meðal ann­ars á að strand­veiðibát­ar séu nú að fá mun meiri þorsk að meðaltali í hverj­um róðri en áður.

„Það er grát­legt að horfa upp á það að hafa farið eft­ir ráðgjöf stofn­un­ar­inn­ar í ára­tugi og ár­ang­ur­inn er þannig að okk­ur er til­kynnt að við meg­um ekki veiða meira en 200 þúsund tonn. Það þarf alla vega að at­huga hvort við séum á réttri leið,“ seg­ir hann.

Mynd­ar­leg aukn­ing í ýsu ánægju­leg

Haf­rann­sókna­stofn­un legg­ur til að afla­mark ýsu verði 62.219 tonn sem er 23% aukn­ing frá yf­ir­stand­andi fisk­veiðiári. Jafn­framt er gert ráð fyr­ir að stofn­inn muni stækka á kom­andi árum og seg­ir Örn ánægju­legt að sjá mynd­ar­lega aukn­ingu í ráðgjöf fyr­ir ýsu.

Marg­ar út­gerðir hafa síðastliðin ár verið að kljást við skort á afla­heim­ild­um í ýsu þar sem fisk­ur­inn er óhjá­kvæmi­leg­ur meðafli á þorskveiðum og sjó­menn ahfa sagst orðið var­ir við mikið af ýsu á miðunum. Örn tel­ur fullt til­efni hafa verið til að auka heim­ild­ir í ýsu mun fyrr.

Að sama skapi seg­ir Örn ánægju­legt að sjá aukn­ingu í afla­marki löngu og keilu sem eru einnig teg­und­ir sem fást sem meðafli.

mbl.is