Minni ufsastofn þrátt fyrir litla sókn

Mun minna hefur verið veitt af ufsa en ráðlagt hefur …
Mun minna hefur verið veitt af ufsa en ráðlagt hefur verið af Hafrannsóknastofnun undanfarin ár. Ljósmynd/Guðmundur Alfreðsson

Of­mat á stærð ufsa­stofns­ins sem sagt var frá á kynn­ing­ar­fundi Haf­rann­sókna­stofn­un­ar í gær vegna ráðgjaf­ar fyr­ir næsta fisk­veiðiár vakti tölu­verða at­hygli. Mun minna hef­ur verið veitt af ufsa á und­an­förn­um árum en það sem stofn­un­in hef­ur ráðlagt, vel yfir hundrað þúsund tonn­um minna frá fisk­veiðiár­inu 2013/​2014.

Fram kom á kom að mat á stofn­stærð ufsa lækk­ar um 17% milli ára og tel­ur stofn­un­in að stofn­inn hafi verið of­met­inn frá ár­inu 2018. Leita þarf aft­ur til fisk­veiðiárs­ins 2012/​2013 að fiski­skipa­flot­inn hafi náð að veiða jafn mikið og ráðlagt hef­ur verið. Til að mynda var á fisk­veiðiár­inu 2020/​2021 landað 29% minni afla en Haf­rann­sókna­stofn­un ráðlagði, 34% minni 2019/​2020 og 11% minni fisk­veiðiárið 2018/​2019.

Þrátt fyr­ir að sókn­in sé eins lít­il og raun ber vitni virðist ufsa­stofn­inn ekki hafa stækkað. Lækk­ar ráðgjöf stofn­un­ar­inn­ar fyr­ir næsta fisk­veiðiár þó ekki um 17% held­ur 8% vegna sveiflu­jöfn­un­ar í afla­reglu og nem­ur ráðgjöf­in 71.300 tonn­um. Má því gera ráð fyr­ir að ráðgjöf haldi áfram að lækka næstu ár.

Fátt bend­ir til að út­gerðar­menn hafi áhyggj­ur af þessu þar sem síðastliðin ára­tug hef­ur ekki verið veitt meira en rúm 50 þúsund tonn.

mbl.is