Rúna Sif Rafnsdóttir, sjúkraliði sem er búsett á Tálknafirði, komst í fréttirnar í fyrra þegar hún gaf hluta af líffæri úr sér til að bjarga lífi syni vinkonu sinnar. Að mati lesenda Smartlands var hún valin kona ársins 2021. Í dag fékk hún fálkorðuna sem veitt var við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Ef það er einhver sem á skilið að vera valin kona ársins þá er það Rúna Sif sem tók flugið frá Bíldudal til þess að bjarga mannslífi. Eldur Elí er níu mánaða drengur sem þurfti nýja lifur til að geta lifað af. Eldur Elí er sonur Bjarka Páls Eysteinssonar og Kristínar Gunnarsdóttur, sem eru vinir Rúnu Sifjar og eiginmanns hennar, Jónatans Guðbrandssonar. Síðasta sumar kom í ljós að ef Eldur Elí fengi ekki líffæragjöf myndi hann ekki lifa það af. Þá var hann búinn að vera veikur í marga mánuði. Hann var lagður inn á spítala vegna lifrarbólgu sem hann fékk af völdum veirusýkingar. Það gerði það að verkum að hann var með skerta lifrarstarfsemi sem getur verið mjög hættulegt.
„Þegar ég heyrði fyrst af því að foreldrarnir væru að athuga hvort þau gætu gefið honum líffæri úr sér þá flaug það strax í gegnum huga minn að kannski gæti ég gert það ef þau gætu það ekki,“ segir Rúna Sif og bætir við:
„Lea Sif Valsdóttir vinkona okkar býr í Stokkhólmi í Svíþjóð. Hún hafði farið í frí til Gautaborgar með fjölskyldu sinni þar sem þau hittu Kristínu sem var með eldri börnin sín, en Bjarki komst ekki, því hann sat hjá Eldi Elí, sem var kominn í einangrun og ástandið mjög slæmt.
Það var einmitt í þessari ferð sem Lea gerði sér grein fyrir hversu heilsu Elds Elís hafði hrakað hratt og mikið, svo mjög að ekki þyrfti að spyrja að leikslokum, ef engin lifur væri í boði. Það mætti engan tíma missa. Á þessum tímapunkti var vitað að foreldrar hans pössuðu ekki sem líffæragjafar fyrir hann, svo Lea vildi láta kanna hvort hún væri líklegur gjafi.
Stuttu seinna fór Lea með lest eldsnemma frá Stokkhólmi aftur til Gautaborgar í tékk. Ég hafði verið á næturvakt svo ég var vakandi þegar hún var á ferðalaginu og við töluðum svo lengi og hún upplýsti mig um allt sem hún vissi. Bæði áður en hún fór og eftir. Þennan laugardag sendi ég póst í sameiginlegt spjall í vinkonuhópinn okkar og spurði Kristínu hvort við gætum ekki líka farið í tékk hér á Íslandi, þá tóku fleiri undir það í hópnum. Það vildu allir gera sitt.
Síðar þennan laugardag kom í ljós að Lea passaði ekki. Þá sendi ég skilaboð beint á Kristínu vinkonu að ég vildi láta athuga mig. Þetta kom frá mínum dýpstu hjartarótum og ég fann að ég vildi gera þetta. Ég fann strax hvað Kristín og Bjarki voru þakklát. Á mánudeginum voru fleiri búnir að fara í tékk og ég var orðin óþolinmóð og fór að hringja sjálf á Landspítalann. Ég hafði svo sterka tilfinningu að ég þyrfti að fara í þetta tékk,“ segir Rúna Sif.