Risakvíar á kvíabóli í Hringsdal

160 m kví er fremst en hinar eru af stærri …
160 m kví er fremst en hinar eru af stærri gerðinni. Ljósmynd/Halldóra Kristjánsdóttir

Arn­ar­lax setti út í vor lax í nýj­ar kví­ar sem eru mun stærri en þær kví­ar sem hingað til hafa verið notaðar hér við land. Sjókví­arn­ar eru á kvía­bóli fyr­ir­tæk­is­ins sem kennt er við Hrings­dal í Arnar­f­irði og eru 200 metr­ar í um­mál.

Þetta kem­ur fram í Morg­un­blaðinu í dag.

Íslensku sjó­eld­is­fyr­ir­tæk­in hafa mest notað sjókví­ar sem eru 160 metr­ar að um­máli. 200 metra kví­arn­ar rúma um­tals­vert meira. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Birni Hembre, for­stjóra Arn­ar­lax, er mik­il­væg­ur kost­ur að stóru hring­irn­ir eru stöðugri í sjó en þeir minni og verj­ist bet­ur mikl­um öldu­gangi. Minni hreyf­ing verður í kví­un­um og betri aðstæður fyr­ir lax­inn. Aukið rými skapi mögu­leika á að hafa rýmra um fisk­inn. Einnig sé að hægt að hafa fleiri fiska í hverri kví, án þess að nálg­ast há­markið. Þá tel­ur hann kost að með færri kví­um sé notað minna svæði í firðinum, fyr­ir hvert fram­leitt kíló af laxi.

Rúm­mál hverr­ar 200 metra kví­ar er um 70 þúsund rúm­metr­ar, um 20 þúsund rúm­metr­um meira en í hefðbundnu 160 metra sjókví­un­um. Til sam­an­b­urðar má geta þess að stærstu eld­istank­ar á landi rúma 3-5 þúsund rúm­metra.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: