Hrygningarstofninn í hámarki

Stærð hrygningarstofn þorsks er í hámarki.
Stærð hrygningarstofn þorsks er í hámarki. mbl.is/Alfons

„Stofn­vísi­tala hrygn­ing­arþorsks við Ísland hef­ur verið há frá ár­inu 2011. Hún hækk­ar aft­ur í ár og er í há­marki, eft­ir lækk­un síðustu tvö ár.“

Þetta er meðal þess sem fram kem­ur í skýrslu net­aralls, sem fram fór dag­ana 27. mars til 21. apríl 2022 og birt hef­ur verið á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Fram kem­ur í skýrsl­unni um net­arallið að hækk­un stofn­vísi­tölu megi að mestu rekja til þess að vísi­tal­an hafi hækkað á ný í Breiðafirði og Faxa­flóa.

„Vísi­tal­an í Fjör­unni hef­ur einnig farið hækk­andi und­an­far­in ár en minni breyt­ing­ar eru á öðrum svæðum. Kant­ur­inn sker sig áfram úr og fæst mjög lítið af þorski þar. Lengd­ar­dreif­ing þorsks breyt­ist yf­ir­leitt lítið frá ári til árs og und­an­far­inn ára­tug hef­ur magn stærri en 90 sentí­metra fisks verið yfir meðaltali ár­anna 1996-2022. Í ár fékkst hins veg­ar mun meira af 70-90 sentí­metra þorski en í fyrra.“

Haf­rann­sókna­stofn­un lagði 15. júní síðastliðinn til, að afla­mark í þorski fyr­ir fisk­veiðiárið 2022/​2023 yrði 6% lægra en á yf­ir­stand­andi fisk­veiðiári, eða 208.846 tonn. Bú­ist var við lækk­un, þar sem Haf­rann­sókna­stofn­un gaf slíkt til kynna á síðasta ári.

Þá upp­lýsti stofn­un­in að þorsk­stofn­inn hefði verið of­met­inn í fleiri ár.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: