Vill ræða við sjómenn

Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar
Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar mbl.is/Arnþór Birkisson

For­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar vill efna til sam­tals við sjó­menn um ráðgjöf stofn­un­ar­inn­ar um há­marks­afla ein­stakra nytja­teg­unda fiska. Þor­steinn Sig­urðsson for­stjóri seg­ir að slíkt sam­ráð hafi verið viðhaft áður og það þurfi að end­ur­vekja. Hann seg­ir þó spurn­ingu hvort það eigi að vera í því formi sem var eða með öðru fyr­ir­komu­lagi.

Borið hef­ur á gagn­rýni á þá ráðgjöf sem Hafró kynnti á dög­un­um. Hún fól meðal ann­ars í sér að draga þurfi úr veiðum á þorski og karfa. Björn Jónas­son, skip­stjóri á Málmey SK1, og Ágúst Ómars­son, skip­stjóri á Drang­ey SK2, skrifuðu til að mynda grein sem birt­ist í Morg­un­blaðinu í gær, með harðorðri gagn­rýni á Haf­rann­sókna­stofn­un. Þar kem­ur fram að til­trú sjó­manna á að rétt sé að mál­um staðið, fari sím­innk­andi. Ráðgjöf­in sé, að mati flestra reynd­ustu skip­stjóra og sjó­manna lands­ins, al­gjört rugl.

Björn og Ágúst skora á ráðherra sjáv­ar­út­vegs­mála að kalla nokkra af reynslu­bolt­um sjó­manna­stétt­ar­inn­ar á sinn fund, kíkja jafn­vel í veiðidag­bæk­ur skip­anna, og kynna sér raun­veru­leik­ann í líf­ríki sjáv­ar eins og hann blasi við þeim sem vinna á sjón­um. Þeir nefna að best væri að það leiddi til skap­andi sam­ráðsvett­vangs á milli skip­stjórn­ar­manna og sér­fræðinga Hafró.

Lengri um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag, föstu­dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina