Tónlistarkonan Leona Lewis á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum Dennis Jauch. Lewis er langt frá því að vera flíspeysumamma og er sérlega lunkin við að klæða óléttukúluna.
Parið kynntist fyrir 12 árum á tónleikaferðalagi og giftu sig svo árið 2019. Nú bíða þau spennt eftir frumburðinum sem er væntanlegur í sumar.
Hin 37 ára gamla Lewis gerði það gott í tónlistarheiminum eftir að hún vann þriðju seríu The X Factor í Bretlandi. Hún var um tíma ein vinsælasta söngkona Bretlands og hefur gefið út smelli á borð við Bleeding Love og Better in Time.
Lewis tilkynnti óléttuna á Instagram reikningi sínum fyrr á árinu. „Hlakka til að sjá þig í sumar,“ skrifaði hún við myndina.