Starfsmönnum í fiskeldi hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og atvinnutekjur aukist enn meira. Að jafnaði störfuðu 620 manns beint við fiskeldið fyrstu fjóra mánuði ársins, sem er 15% aukning frá sama tímabili í fyrra. Mest eru umsvifin á sunnanverðum Vestfjörðum. Þannig má rekja um þriðjung atvinnutekna í Tálknafirði til fiskeldis og er greinin undirstaða atvinnulífs og mannlífs á staðnum.
„Fiskeldið er orðið undirstaðan í atvinnulífinu hér og þar með mannlífi. Umsvifin hafa vaxið mjög og eru ekki komin á endastöð,“ segir Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps. Á Radarnum, mælaborði sjávarútvegsins hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, er vakin athygli á upplýsingum Hagstofu Íslands um fjölgun starfa í fiskeldi. Þar kemur fram að atvinnutekjur af fiskeldi jukust mjög á Vestfjörðum, sérstaklega á sunnanverðum Vestfjörðum. Þannig eiga 32% atvinnutekna í Tálknafjarðarhreppi uppruna sinn í fiskeldi og sömuleiðis 23% atvinnutekna í Vesturbyggð. Hlutfallið er lægra í öðrum fiskeldissveitarfélögum landsins. Eigi að síður eru áhrifin umtalsverð og vaxandi víðast hvar.
Lengri umfjöllun um málið má finna í Morgunblaðinu í dag, föstudag.