„Stórt skref“ fyrir fiskeldi á svæðinu

Fóðurpramminn kom til landsins í gær.
Fóðurpramminn kom til landsins í gær. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Fyrsti fóðurpramm­inn fyr­ir lax­eldi Há­fells í Ísa­fjarðar­djúpi kom til Ísa­fjarðar í gær. Drátt­ar­skipið Bestla lagði af stað með pramm­ann frá Tall­inn í Eistlandi 17. júní en norska fyr­ir­tækið Akvagroup smíðar pramm­ann.

Gauti Geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Há­fells, seg­ir komu pramm­ans stór­an áfanga í at­vinnu­sögu við Ísa­fjarðar­djúp og stórt skref í að byggja upp fisk­eldi á svæðinu. „Mjög spenn­andi skref á all­an máta.“

Von­ir standa til að pramm­inn verði kom­inn út á Djúpið í lok næstu viku en hann verður staðsett­ur í Vigurál und­an Skarðsströnd á eld­isstaðsetn­ingu Há­fells. Að sögn Gauta eru blás­ar­ar um borð í pramm­an­um sem munu blása fóðrinu í gegn um slöng­ur út í kví­arn­ar.

Hægt að fóðra í vondu veðri

„Það trygg­ir mjög jafna, góða og stöðuga fóðrun, jafn­vel hægt að fóðra þegar það er vont veður og ekki hægt að kom­ast í kví­arn­ar. Svo fisk­ur­inn fær alltaf að éta.“

Stefn­an er síðan að land­tengja pramm­ann, þá verður raf­magn tekið úr landi með sæ­streng og pramm­inn þannig knú­inn áfram.

Öllum áhuga­söm­um er boðið að skoða pramm­ann í innri höfn Ísa­fjarðar fyr­ir fram­an Ed­in­borg á mánu­dag­inn, 4. júlí, milli klukk­an 16 og 18.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: