Meta magn makríls, kolmunna og síldar

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lét úr höfn 4. júlí og mun …
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lét úr höfn 4. júlí og mun vera á sjó í 19 daga. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Rann­sókna­skipið Árni Friðriks­son er nú statt norðvest­ur af Langa­nesi en það tek­ur þátt í 19 daga alþjóðleg­um rann­sókna­leiðangri sem hófst 4. júlí síðastliðinn.

Mark­mið leiðang­urs­ins er er að meta magn og út­breiðslu mak­ríls, kol­munna og norsk-ís­lenskr­ar síld­ar í norðaust­ur Atlants­hafi að sum­ar­lagi, að því er fram kem­ur á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Þar seg­ir jafn­framt að einnig sé aflað gagna sem „nýt­ast við vökt­un og fjöl­breytt­ar rann­sókn­ir á ýms­um þátt­um vist­kerf­is­ins frá frum­fram­leiðni sjáv­ar til út­breiðslu hvala.“

Svæðið sem Árni Friðriks­son mun skoða er fyr­ir vest­an, norðan og sunn­an landið ásamt svæði í græn­lenskri land­helgi norður af Íslandi. Í eiðangr­in­um sigl­ir skipið tæp­lega 3.300 sjó­míl­ur eða um 6.100 km og verða tekn­ar 45 yf­ir­borðstog­stöðvar á fyr­ir­fram ákveðnum stöðum. Um borð eru 7 vís­inda­menn og 17 manna áhöfn.

Ásamt Árna Friðriks­syni taka rann­sókna­skip frá Nor­egi, Fær­eyj­um, Græn­landi og Dan­mörku þátt og er þetta þrett­ánda árið í röð sem Haf­rann­sókna­stofn­un er aðili að leiðangr­in­um. Skip frá Nor­egi og Fær­eyj­um munu sinna svæðinu aust­ur af land­inu.

:
mbl.is