Ekki gert ráð fyrir vaxandi stofnstærð úthafsrækju

Bjarni Sæmundsson hefur lagt af stað í 17 daga rækjuleiðangur.
Bjarni Sæmundsson hefur lagt af stað í 17 daga rækjuleiðangur. mbl.is/sisi

Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson er að hefja 17 daga leiðangur til að skoða útbreiðslu og magn rækju í úthafinu, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar. Þar segir að mælingar fari fram á 86 stöðvum í stofnmælingunni.

Úthafsrækjusvæðið hefur verið kannað árlega með sambærilegum hætti frá árinu 1987 að undanskildum árunum 2019 og 2021, en gögnin eru notuð til að meta stofnstærð og veita ráðgjöf um veiðar á úthafsrækju.

Fram kom í ráðgjafarskjali vegna yfirstandandi fiskveiðiárs að „vísitala ungrækju hefur verið lág frá 2004 og hefur verið í sögulegu lágmarki frá 2015. [...] Stofnmælingar síðustu ára benda því til að stofninn muni ekki stækka á næstu árum.“ Þá telur Hafrannsóknastofnun að afrán hafi líklega aukist á undanförnum árum.

Í leiðangrinum verður haldið áfram að merkja þorsk. Sérstakt átak í þorskmerkingum hófst 2019 og hafa um 17 þúsund þorskar verið merktir. Merki úr tæplega 700 þorskum hafa skilað sér til Hafrannsóknastofnunar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: