Meirihluti hluthafa í eignarhaldsfélaginu Arctic Fish Holding, sem fer með alla hluti í fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish á Vestfjörðum, hefur lagt til að Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf., verði kjörinn í stjórn félagsins á aðalfundi þess sem fram fer 18. júlí.
Þetta kemur fram í tilkynningu Arctic Fish Holding til norsku kauphallarinnar í dag.
Auk Gunnþórs er lagt til að Svein Sivertsen haldi áfram sem stjórnarformaður og að í stjórn verði kjörin þau Charles Høstlund, Hildur Árnadóttir og Bjørn Kleven.
Síldarvinnslan tilkynnti í síðasta mánuði að félagið hefði fest kaup á 34,2% hlut í Arctic Fish Holding fyrir um 13,7 milljarða íslenskra króna.
Arctic Fish er með mikil áform um uppbyggingu í Bolungarvík og er stefnt að því að opna stækkað laxsláturhús með 25 þúsund tonna sláturgetu á næsta ári, alls 5.000 fermetra.
Þá hafa einnig staðið yfir viðræður við Bolungarvíkurkaupstað um að stækka lóð sláturhússins þannig að í viðbyggingu væri hægt að koma fyrir pökkun í neytendaumbúðir, auk hugsanlegrar kassagerðar og mjöl- og lýsisvinnslu úr afskurði frá sláturhúsinu.