Mótmæltu fyrirhuguðu fiskeldi

Yfirskrift fundarins Fokk fiskeldi í firðinum.
Yfirskrift fundarins Fokk fiskeldi í firðinum. mbl.is/Ari Páll

Íbúar Seyðis­fjarðar og gest­ir lista­hátíðar­inn­ar LungA komu sam­an í firðinum á laug­ar­dag­inn til að mót­mæla fyr­ir­huguðu sjókvía­eldi þar. Að sögn Ásrún­ar Mjall­ar Stef­áns­dótt­ur, sem er í sam­tök­un­um VÁ – fé­lagi um vernd fjarðar, og sit­ur í sveit­ar­stjórn Múlaþings, voru mót­mæl­in vel sótt.

Mót­mæl­un­um var lýst sem sam­stöðufundi með íbú­um og sam­veru­stund. Fyr­ir­huguðum fram­kvæmd­um fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fisk­eldi Aust­fjarða, sem er að stærst­um hluta til í eigu stór­fyr­ir­tæk­is­ins Måsøval AS, var mót­mælt. Lax­ar fisk­eldi er einnig í eigu stór­fyr­ir­tæk­is­ins. 

Meiri­hluti íbúa mót­fall­inn fisk­eld­inu

Ásrún bend­ir á að um 55 pró­sent Seyðfirðinga séu búin að ljá und­ir­skriftal­ista nafn sitt til að mót­mæla fisk­eld­inu

„Þetta er merki um það að pen­ing­ar er­lendra stór­fyr­ir­tækja séu að valta yfir vilja fólks,” seg­ir Ásrún. 

Hún bæt­ir við að fund­ur sem var hald­inn í bæn­um af Skipu­lags­stofn­un rík­is­ins um haf- og strandsvæðis­skipu­lag sem fyr­ir­hugað er að samþykkja á kom­andi miss­er­um hafi komið henni og mörg­um íbú­um á óvart.

„Til­finn­ing­in var sú að skipu­lagið væri samið fyr­ir fisk­eldið,” seg­ir Ásrún og bæt­ir því við að hún ásamt meðlim­um í Vá – fé­lags um vernd fjarðar – hafi í kjöl­farið sent at­huga­semd­ir við skipu­lag­inu en að svör hafi verið af skorn­um skammti.

Fólk kom saman á ströndinni í Seyðisfirði til að mótmæla.
Fólk kom sam­an á strönd­inni í Seyðis­firði til að mót­mæla. mbl.is/​Ari Páll

Gæti ógnað sæ­streng og skipaleiðum

Ásrún bend­ir á að fisk­eldi í firðinum gæti komið til með að ógna bæði Farice-1 sæ­strengn­um sem ligg­ur úr Seyðis­firði og sigl­inga­leiðum skipa um fjörðinn. Þá seg­ir hún að meðlim­ir Vá - fé­lags um vernd fjarðar hafi orðið var­ir við það að tals­menn fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins hafi not­ast við vit­lausa mæliein­ingu þegar þeir hafa reiknað út helg­un­ar­svæði sæ­strengs­ins og um­ferð skipa.  

„Farice hef­ur staðfest að það eigi að nota sjómílu á Íslandi í svona reikn­ing­um en fisk­eld­is­fyr­ir­tækið not­ar breska mílu sem gef­ur þeim meira pláss. Sama villa kom fram í kynn­ing­unni á haf- og strandsvæðis­skipu­lag­inu.“ Sú villa hef­ur ekki verið lag­færð af sögn Ásrún­ar. 

„Þeir tala um þetta eins og þetta eigi að ger­ast í haust 2023 og tala mjög fögr­um orðum um að þetta eigi að fara fram í sátt og sam­lyndi íbúa en þetta er það alls ekki.”  

Ásrún tók til máls á fund­in­um ásamt Tinnu Hall­gríms­dótt­ur, for­manni Ungra um­hverf­issinna, og Pétri Heim­is­syni, sveita­stjórn­ar­full­trúa Vinstri grænna í Múlaþingi. Að auki fór Haf­meyju­klúbbur­inn með list­ræn­an gjörn­ing á mót­mæl­un­um. Hóp­ur­inn sam­an­stend­ur af Ásrúnu, Perlu Gísla­dótt­ur sjálf­bærni­arki­tekt og Áslaugu Magnús­dótt­ur tón­skáldi. Þær settu þá vatns­held­an hljóðnema ofan í sjó sem streymdi hljóði frá sjón­um beint til fólks á mót­mæl­un­um. 

Mótmælin fóru fram á ströndinni í Seyðisfirði.
Mót­mæl­in fóru fram á strönd­inni í Seyðis­firði. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is