Barnastjarna fer í magaermi

Alana Thompson er 16 ára og vinalaus.
Alana Thompson er 16 ára og vinalaus. Skjáskot/Instagram

Barnastjarnan Alana Thompson, betur þekkt sem Honey Boo Boo, mun ganga undir hnífinn í ágúst. Hún er að fara í magaermisaðgerð til að léttast. Hún er sögð vera 125 kíló og að leitast eftir því að missa 68 kíló eftir aðgerðina.

Samkvæmt heildarmönnum hefur hún áhyggjur af því að þyngd hennar sé genatengd og því eigi hún enga aðra möguleika í stöðunni en að fara í aðgerð, til að ná markmiðum sínu. Hún mun gangast undir aðgerðina ásamt kærasta sínum sem er einnig með markmið um að grennast. 

Thomp­son varð fræg þegar hún var ung að aldri og móðir henn­ar, June Shannon, sendi hana í hverja feg­urðarsam­keppn­ina á eft­ir ann­arri. Í kjöl­farið hef­ur fjöl­skyld­an verið í nokkr­um raun­veru­leikaþátt­um.

mbl.is