Heitasta hárgreiðslan í dag er svokallaður „skandinavískur snúður“ þar sem hárinu er fyrst skipt fyrir miðju og síðan er því sleikt aftur í lágan eða miðlungsháan snúð. Mörgum til mikillar ánægju er þessi einfalda greiðsla að gera allt vitlaust á samfélagsmiðlum og hafa stjörnur á borð við Hailey Bieber, Bella Hadid og Kendall Jenner mikið dálæti á greiðslunni.
Greiðslan er í senn einföld og glæsileg. Við höfum séð stjörnurnar ganga rauða dregilinn í sínu fínasta pússi með greiðsluna, en hún fer einnig vel við einföld hversdagsdress.
Hárgreiðslumaður fræga fólksins, Chris Appelton er þekktur fyrir að sjá um greiðslur Kim Kardashian og Jennifer Lopez, en hann gerði nýlega myndband þar sem hann sýnir hvernig þú nærð fram hinum fullkomna skandinavíska snúð.