Síldarvinnslan boðar til hluthafafundar

Síldarvinnslan hf. hefur boaðð til hluthafafundar. Fyrir fundinum liggur tillaga …
Síldarvinnslan hf. hefur boaðð til hluthafafundar. Fyrir fundinum liggur tillaga um hlutafjáraukningu vegna kaupa á Vísi hf. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Síld­ar­vinnsl­an hf. hef­ur boðið til hlut­hafa­fund­ar 18. ág­úst næst­kom­andi. Fyr­ir fund­inn ligg­ur ein til­laga er snýr að aukn­ingu hluta­fjár fé­lags­ins en aukn­ing­in er hluti af kaup­um fé­lags­ins á Vísi hf. í Grinda­vík.

Síld­ar­vinnsl­an til­kynnti 10. júlí síðastliðinn að gengið hefði verið frá samn­ingi um kaup fé­lags­ins á öllu hluta­fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Vís­is hf. fyr­ir 20 millj­arða króna. Vaxta­ber­andi skuld­ir Vís­is hf. nema um 11 millj­örðum króna og nema viðskipt­in því sam­tals um 31 millj­arði króna.

Kaup­in fara fram með fyr­ir­vara um samþykkt hlut­hafa Síld­ar­vinnsl­unn­ar og Sam­keppn­ins­eft­ir­lits­ins.

Síld­ar­vinnsl­an hef­ur á vef sín­um birt fund­ar­boðið og er aðeins hluta­fjáraukn­ing­in á dag­skrá. „Verði til­lag­an samþykkt er stjórn fé­lags­ins veitt heim­ild til að hækka hluta­fé fé­lags­ins um kr. 145.939.749 að nafn­v­irði vegna kaupa fé­lags­ins á öllu hluta­fé í Vísi hf. Hlut­haf­ar falla jafn­framt frá áskrift­ar­rétti sín­um að hluta­fjáraukn­ing­unni. Verður heim­ild­in tek­in upp í samþykkt­ir fé­lags­ins og veitt til 12 mánaða frá dag­setn­ingu samþykkt­ar,“ seg­ir í fund­ar­boðinu.

mbl.is