Fundu mun meira af makríl í íslenskri lögsögu

Sífellt minna af makríl hefur fundist umhverfis ÍSland á undanförnum …
Sífellt minna af makríl hefur fundist umhverfis ÍSland á undanförnum árum. Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar bendir til þess að það kunni að vera að breytast. mbl.is/Árni Sæberg

Nokkuð óvænt sýna bráðbirgðaniður­stöður upp­sjáv­ar­vist­kerf­is­leiðang­urs í Norður­höf­um sem lauk 21. júlí, að magn og út­breiðsla mak­ríls í ís­lenskri land­helgi er mun meira en und­an­far­in tvö sum­ur.

„Mak­ríll fannst meðfram suður- og vest­ur­strönd lands­ins, bæði á land­grunn­inu og utan þess,“ seg­ir í til­kynn­ingu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. „Fyr­ir sunn­an, fannst mak­ríll í Íslands­djúpi suður að 62 °N breidd­ar­gráðu en mak­ríll hef­ur ekki feng­ist í þess­um leiðangri svo sunn­ar­lega síðan sumrið 2016. Bráðabirgðaniður­stöður frá norsku og fær­eysku rann­sókn­ar­skip­un­um sýndu að mak­ríll var einnig að finna aust­an við land.“

Leiðang­ur­inn er alþjóðleg­ur og tóku sex skip þátt, rann­sókna­skipið Árni Friðriks­son fyr­ir hönd Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.  Útbreiðsla og þétt­leiki mak­ríls, síld­ar og kol­munna í ís­lenskri land­helgi var rann­sökuð að und­an­skild­um aust­ur­hluta henn­ar sem Fær­ey­ing­ar og Norðmenn rann­sökuðu.

Þá seg­ir að gögn frá skip­un­um sex sem tóku þátt í leiðangr­in­um verða tek­in sam­an og greind upp úr miðjum ág­úst og niður­stöður kynnt­ar und­ir lok ág­úst.

Útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar og hrognkelsa (rauðir fylltir hringir) …
Útbreiðsla og þétt­leiki mak­ríls, síld­ar og hrogn­kelsa (rauðir fyllt­ir hring­ir) ásamt hita­stigi í yf­ir­borðslagi sjáv­ar (10 m dýpi). Yf­ir­borðstog­stöðvar með eng­um afla af viðkom­andi teg­und er merkt­ar með blá­um punkt. At­hugið að kvarði fyr­ir þétt­leika er mis­mun­andi milli teg­unda. Mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

7 þúsund kíló­metr­ar

 „Líkt og und­an­far­in ár var norsk-ís­lenska vorgots­s­íld að finna á flest­um tog­stöðvum fyr­ir norðan og aust­an landið og ís­lensk sum­argots­s­íld á land­grunn­inu fyr­ir sunn­an og vest­an landið. Kynþroska kol­munni mæld­ist við land­grunns­brún­ina sunn­an og vest­an við landið. Magn og út­breiðsla hrogn­kelsa var minni í ár en und­an­far­in ár. Í leiðangr­in­um voru merkt alls 64 hrogn­kelsi,“ seg­ir í til­kynnign­unni.

Þá sýna bráðabirgðaniður­stöður að hita­stig í yf­ir­borðslagi var álíka og sum­arið 2021 og aðeins hlýrra en sum­arið 2020.

Leiðang­ur Árna Friðriks­son­ar stóð í 18 daga og voru tekn­ar 48 tog­stöðvar í kring­um landið og sigld­ar um 3.800 sjó­míl­ur eða 7 þúsund kíló­metr­ar. Þá voru gerðar sjó­mæl­ing­ar og tekn­ir átu­háf­ar á öll­um yf­ir­borðstog­stöðvum.

mbl.is