Svandís fær Boston Consulting til að skoða eldi

Meðal annars verður gerð úttekt á mögulegum mótvægisaðgerðum vegna umhverfisáhrifa …
Meðal annars verður gerð úttekt á mögulegum mótvægisaðgerðum vegna umhverfisáhrifa sjókvíaeldis. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Útibú banda­ríska ráðgjafa­fyr­ir­tækið Bost­on Consulting í Svíþjóð mun ann­ast skýrslu­gerð um stöðu eld­is­greina á Íslandi fyr­ir mat­vælaráðuneytið. Meðal ann­ars á að skoða mót­vægiaðgerðir vegna um­hverf­isáhrifa sjókvía­eld­is hér á landi. Þá er mark­miðið að greina tæki­færi og áskor­an­ir grein­ar­inn­ar hér á landi og mun skýrsl­an meðal ann­ars vera notuð við stefnu­mót­un á þessu sviði.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðsins.

Þar seg­ir að Svandís Svavars­dótt­ir mat­vælaráðherra hafi ákveðið að láta gera um­rædda skýrslu um lagar­eldi, en und­ir lagar­eldi fell­ur sjókvía-, land-, þör­unga- og út­hafseldi. Gengið var til samn­inga við ráðgjafa­fyr­ir­tækið Bost­on Consulting Group Nordic AB í kjöl­far útboðs.

Skýrsl­an, sem gert er ráð fyr­ir að verði til­bú­in í nóv­em­ber á þessu ári, er sögð eiga að vera „ít­ar­leg út­tekt á á stöðu lagar­eld­is á Íslandi. Í skýrsl­unni verða greind­ir framtíðarmögu­leik­ar og áskor­an­ir grein­ar­inn­ar og mun sú vinna nýt­ast við stefnu­mót­un mat­vælaráðherra. Tekið verður mið af um­hverf­is­mál­um, verðmæta­sköp­un og reglu­verki.

Til sam­ræm­is við stjórn­arsátt­mála verður áhersla lögð á að kort­leggja tæki­færi til sjálf­bærs vaxt­ar grein­ar­inn­ar með vís­inda­lega þekk­ingu að leiðarljósi. Höfð verður hliðsjón af sam­an­b­urðargrein­ingu við þau lönd sem helst stunda lagar­eldi“.

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, segir vöxtur eldisgreina verði að vera með …
Svandís Svavars­dótt­ir, mat­vælaráðherra, seg­ir vöxt­ur eld­is­greina verði að vera með hags­muni sam­fé­lags og nátt­úru að leiðarljósi. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Sjókvía­eldi til­greint sér­tak­lega

Vek­ur ráðuneytið at­hygli á að mik­ill vöxt­ur hafi verið í leyf­is­veit­ing­um til sjókvía­eld­is og fram­leiðslu á und­an­förn­um ára­tug hér á landi. Boðuð er út­tekt „á mögu­leg­um mót­vægisaðgerðum vegna um­hverf­isáhrifa af hinni ýmsu starf­semi“ og er sér­stak­lega til­greint sjókvía­eldi.

„Það er aug­ljóst að lagar­eldi er framtíðar­at­vinnu­grein á heimsvísu,“ seg­ir Svandís Svavars­dótt­ir mat­vælaráðherra. „Það eru í senn okk­ar for­rétt­indi og ábyrgð að koma mál­um í þann far­veg að grein­in eigi sér bjarta framtíð á Íslandi, með hags­muni sam­fé­lags og nátt­úru að leiðarljósi.“

Upp­fært klukk­an 15:44

Mat­vælaráðuneytið hef­ur leiðrétt til­kynn­ingu sína þar sem sagt var „banda­ríska ráðgjaf­ar­fyr­ir­tækið Bost­on Consulting“ og seg­ir í tölvu­pósti: „Það hefði átt að koma fram hjá okk­ur að um er að ræða Bost­on Consulting Group Nordic AB sem er með starfs­menn á Norður­lönd­un­um og höfuðstöðvar í Svíþjóð. Það er því ekki rétt að Banda­ríkja­menn séu að vinna að skýrsl­unni.“ Frétt­in hef­ur verið leiðrétt með til­liti til þessa.

mbl.is