Leggja til minni veiði úthafsrækju

Úthafsrækjustofninn heldur áfram að minnka og nemur ráðgjöf um hámarksafla …
Úthafsrækjustofninn heldur áfram að minnka og nemur ráðgjöf um hámarksafla fyrir næsta fiskveiðiár 5.022 tonnum. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Haf­rann­sókna­stofn­un legg­ur til að há­marks­afli út­hafs­rækju fisk­veiðiárið 2022/​2023 verði ekki meiri en 5022 tonn. Um er að ræða rúm­lega 2% skerðingu frá ráðgjöf vegna yf­ir­stand­andi fisk­veiðiárs sem lýk­ur 31. ág­úst næst­kom­andi.

Fram kem­ur í ráðgjaf­ar­skjali Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að stofn­un­in telji lík­legt að afrán þorsks á út­hafs­rækju hafi auk­ist á und­an­förn­um árum, og vís­ar til þess að vísi­tala þorsks í stofn­mæl­ingu út­hafs­rækju hafi verið há allt frá ár­inu 2014 og í há­marki árin 2016 til 2018. Þá hef­ur mæslt mikið af þorski í stofn­mæl­ingu botn­fiska að vori og hausti.

Stofn­vísi­tala út­hafs­rækju hef­ur lækkað frá ár­inu 2018 en að hún er yfir varúðarmörk­um.

At­hygli vek­ur að leita þarf aft­ur til fisk­veiðiárs­ins 2015/​2016 til að ís­lenski fiski­skipa­flot­inn hafi náð að veiða magn sem nær ráðlagðri há­marks­veiði, að því er fram kem­ur í tækni­skýrslu. Það ár voru þór veidd 300 tonn um­fram ráðgjöf.

Það sem af er fisk­veiðiári hef­ur aðeins verið landað 1.933 tonn­um af út­hafs­rækju eða um þriðjung­ur þess afla sem heim­ilt er að veiða. Þetta má lesa úr töl­um Fiski­stofu.

mbl.is