25 milljarða samningur um eldi í Ölfusi

Fyrsti áfangi landeldisstöðvar Geo Salmo í Ölfusi mun framleiða 7.300 …
Fyrsti áfangi landeldisstöðvar Geo Salmo í Ölfusi mun framleiða 7.300 tonn af laxi á ári. Mynd/Geo Salmo

Geo Salmo hef­ur und­ir­ritað samn­ing við norska fyr­ir­tækið Artec Aqua um hönn­un og upp­bygg­ingu lax­eld­is­stöðvar sinn­ar á landi í Ölfusi, vest­an Þor­láks­hafn­ar og er heild­ar­verðmæti samn­ings­ins á bil­inu 21 til 25 millj­arða króna, að því er fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu.

Þar seg­ir að samn­ing­ur­inn nái til hönn­un, búnað og sjálfa upp­bygg­ingu fyrsta áfanga land­eld­is­stöðvar­inn­ar sem áætlað er að fram­leiði 7.300 tonn af heil­um laxi á ári. Stefnt er að því að full­byggð stöð geti fram­leitt um 20 þúsund tonn ár­lega.

Eld­is­stöð Geo Salmo í Ölfusi mun nýta hrein­an sjó úr jörðu sem sagður er henta afar vel til lax­eld­is. Þá verður stöðin með há­tækni­búnað til að stýra hita­stigi og vatns­gæðum sem á að tryggja hag­stæð vaxt­ar­skil­yrði og vel­ferð fisks­ins í aðstæðum sem end­ur­spegla eiga nátt­úru­legt um­hverfi hans. Þá verða öll ker yf­ir­byggð sem á að skila auk­inni stjórn á eld­is­ferl­inu.

Und­ir­bún­ings­hönn­un Artec Aqua er þegar haf­in, en fram­kvæmd­ir hefjast sam­kvæmt áætl­un haustið 2023 og er stefnt að því að fá að verk­efn­inu fjöl­marga ís­lenska verk­taka og þjón­ustuaðila. „Þannig bygg­ist upp ný þekk­ing og reynsla á Íslandi sem get­ur nýst þeirri ört vax­andi at­vinnu­grein sem land­eldi á laxi stefn­ir á að verða á næstu árum hér á landi,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Í hæsta gæðaflokki

„Okk­ur er ein­stök ánægja að hefja sam­starf við Artec Aqua um upp­bygg­ingu Geo Salmo. Þau hafa tryggt stöðu sína sem leiðtogi á heimsvísu í land­eldi á fiski og hafa sýnt ein­staka getu til þess að mæta og fara fram úr vænt­ing­um við upp­bygg­ingu verk­efna sinna. Sam­spil þekk­ing­ar, reynslu og yf­ir­burðatækni Artec Aqua réðu úr­slit­um um val okk­ar á heild­ar­birgja fyr­ir verk­efnið. Sam­starfið mun tryggja ár­ang­ur í veg­ferð okk­ar að eldi á laxi í hæsta gæðaflokki sem einnig verður meðal um­hverf­i­s­væn­ustu mat­væla,“ seg­ir Jens Þórðar­son, fram­kvæmda­stjóri Geo Salmo.

Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri Geo Salmo ehf.
Jens Þórðar­son, fram­kvæmda­stjóri Geo Salmo ehf. Ljós­mynd/​Aðsend

„Við unn­um for­hönn­un­ar­verk­efni með Geo Salmo í vor á þessu ári og erum afar ánægð með að halda áfram góðu sam­starfi með þessu gríðaröfluga teymi. Verk­efnið er afar spenn­andi þar sem það sam­ein­ar blandaða gegn­um­streymis­tækni okk­ar og ein­stak­ar aðstæður á Íslandi þar sem afla má  salt­vatns sem hef­ur síast nátt­úru­lega gegn­um hraungrýti. Val á okk­ur sem sam­starfsaðila í þessu viðamikla verk­efni er staðfest­ing á sterku orðspori Artec Aqua við upp­bygg­ingu land­eld­is­stöðva og ein­stakri hæfni okk­ar teym­is,“ seg­ir Ingegjerd Eidsvik, fram­kvæmda­stjóri Artec Aqua.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina