Grunur um eldislax í á á Vestfjörðum

Starfsmenn Fiskistofu og Matvælastofnunar hafa farið á staðinn og tekið …
Starfsmenn Fiskistofu og Matvælastofnunar hafa farið á staðinn og tekið sýni sem send voru til Hafrannsóknastofnunar til erfðagreiningar. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Einar Falur

Mat­væla­stofn­un barst til­kynn­ing þann 26. ág­úst vegna laxa sem voru veidd­ir á Vest­fjörðum en grun­ur er um að um eld­islax sé að ræða.

Starfs­menn Fiski­stofu og Mat­væla­stofn­un­ar hafa farið á staðinn og tekið sýni sem send voru til Haf­rann­sókna­stofn­un­ar til erfðagrein­ing­ar. At­vikið er til meðferðar hjá Mat­væla­stofn­un.

Frek­ari upp­lýs­ing­ar verða veitt­ar um málið þegar niður­stöður erfðagrein­ing­ar liggja fyr­ir, að því er stofn­un­in grein­ir frá í til­kynn­ingu. 

mbl.is