Hafna kröfu um stöðvun framkvæmda í Patreksfirði

Deilt er um breytingu á rekstrarleyfi Arctic Sea Farm sem …
Deilt er um breytingu á rekstrarleyfi Arctic Sea Farm sem snýr að staðsetningu sjókvíaeldis í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Úrsk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála hafnaði í lok ág­úst einni kæru og ein­um lið í ann­arri kæru eig­enda Efri-Tungu II og eig­enda helm­ings Efri-Tungu við Pat­reks­fjörð er snúa að ákvörðunum Um­hverf­is­stofn­un­ar og Mat­væla­stofn­un­ar um breytta staðsetn­ingu sjókvía­eld­is Arctic Sea Farm (Arctic Fish) í Pat­reks­firði. Enn eru til meðferðar kröf­ur um að fella úr gildi breyt­ingu starfs­leyf­is­ins.

Af gögn­um máls­ins að ráða krafðist kær­andi í öðru mál­inu að felld verður úr gildi ákvörðun Um­hverf­is­stofn­un­ar frá 14. júlí síðastliðnum um að breyta starfs­leyfi Arctic Sea Farm ehf. fyr­ir sjókvía­eldi í Pat­reks­firði og Tálknafirði með til­liti til staðsetn­ingu eld­is­svæða, hvíld­ar­tíma og heim­ild til notk­un­ar ásætu­varna sem inni­halda kop­aroxíð. Auk þess sem kraf­ist var að úr­sk­urðar­nefnd­in taki nýja ákvörðun þess efn­is að synja um­sókn leyf­is­hafa um breyt­ingu á starfs­leyfi.

Jafn­framt krafðist kær­andi að réttaráhrif ákvörðunar Um­hverf­is­stofn­un­ar yrði frestað.

Sam­bæri­leg­ar kröf­ur voru gerðar í hinni kær­unni er snýr að ákvörðunar Mat­væla­stofn­un­ar frá 15. júlí 2022 um að breyta rekstr­ar­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins fyr­ir sjókvía­eldi í Pat­reks­firði og Tálknafirði að því er varðar staðsetn­ingu eld­is­svæða og hvíld­ar­tíma.

Bæj­ar­ins besta fjallaði fyrst um málið.

Langt þar til fram­kvæmda kem­ur

Í úr­sk­urði nefnd­ar­inn­ar vegna kæru vegna ákvörðunar Um­hverf­is­stofn­un­ar er kröfu um frest­un réttaráhrifa hafnað en ekki tek­in afstaða til fyrsta lið kær­unn­ar er snýr að því að ógilda ákvörðun­ina sem heim­il­ar að færa eld­is­svæði Arctic Sea Farm í Pat­reks­firði.

„Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá leyf­is­hafa verður hið um­deilda eld­is­svæði ekki tekið í notk­un fyrr en í fyrsta lagi á ár­inu 2024 þegar nú­ver­andi fisk­eld­islotu í Pat­reks­firði lýk­ur með slátrun eld­is­fisks og að lokn­um hvíld­ar­tíma, en úr­sk­urðar í máli þessu er að vænta fyr­ir þann tíma. Með þessu verður ekki séð að kæra verði þýðing­ar­laus fyr­ir kær­anda þótt hafnað verði kröfu hans um frest­un réttaráhrifa á meðan málið er til meðferðar fyr­ir úr­sk­urðar­nefnd­inni eða að af því hljót­ist tjón fyr­ir hann sem erfitt verði að ráða bót á. Hins veg­ar er mögu­legt að frest­un­in yrði veru­lega íþyngj­andi fyr­ir leyf­is­hafa. Að fram­an­greindu virtu verður kröfu kær­anda um frest­un réttaráhrifa hafnað,“ seg­ir í úr­sk­urðinum.

Úrsk­urður er snýr að ákvörðun Mat­væla­stofn­un­ar tek­ur aðeins af­stöðu til kröfu kær­enda um stöðvun yf­ir­vof­andi fram­kvæmda. Vek­ur nefnd­in at­hygli á, eins og í hinni kær­unni, að enn er nokkuð langt þangað til að fyr­ir­hugað sé að taka í notk­un rekstr­ar­leyfi með breyttu sniði og því er þeirri kröfu hafnað.

Kraf­an um að um­sókn til Mat­væla­stofn­un­ar um breytt rekstr­ar­leyfi verði tek­in til um­fjöll­un­ar á ný og henni synjað er enn til meðferðar hjá úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála.

mbl.is