Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Ice Fish Farm, kveðst vona að stjórnvöld heimili bólusetningu laxfiska gegn ISA-veirunni sem veldur blóðþorra. Veiran hefur valdið fyrirtækinu þó nokkru tjóni eftir að hún breiddist út milli kvía og eldissvæða á Austurlandi í vor.
„Bólusetningar voru bannaðar vegna þess að við vorum ISA-veirulaust land, en núna er hið opinbera að skoða smitvarnir og bólusetningar,“ segir Jens í Morgunblaðinu í dag. Hann vísar til þess að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hafi ákveðið að skipa starfshóp til að skoða smitvarnir og sjúkdóma í fiskeldi. Eitt þeirra atriða sem eru til skoðunar er hugsanlegur ávinningur af skyldubólusetningu gegn ISA-veirunni.
„Ég vona bara að það komi eitthvað út úr því, því bólusetningar samkvæmt rannsóknum stórminnka líkurnar á smiti,“ segir Jens.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.