Ríkulega útbúinn fóðurprammi

Dráttarbátur kemur með Nónhorn til Þingeyrar. Hann mun þjóna kvíabóli …
Dráttarbátur kemur með Nónhorn til Þingeyrar. Hann mun þjóna kvíabóli Arctic Fish í Arnarfirði. Ljósmynd/Arctic Fish

Nýr fóðurprammi sem Arctic Fish hef­ur keypt frá Sca­leAQ mun þjóna nýj­asta kvía­bóli fyr­ir­tæk­is­ins, við Hvestu í Arnar­f­irði. Nú er verið að stand­setja hann í höfn­inni á Þing­eyri en verður dreg­inn inn í Arn­ar­fjörð ein­hvern næstu daga. Pramm­inn var pantaður til þess að þjóna vænt­an­legu eldi Arctic í Ísa­fjarðar­djúpi en dreg­ist hef­ur hjá yf­ir­völd­um að af­greiða um­sókn­ir nokk­urra fyr­ir­tækja um leyfi. Von­ast er til að niðurstaða fá­ist fyr­ir lok árs.

Nýi fóðurpramm­inn, sem fengið hef­ur heitið Nón­horn og er sá fimmti sem Arctic Fish kaup­ir, er einn best út­búni fóðurprammi sem farið hef­ur á flot. Hann tek­ur rúm­lega 600 tonn af fóðri í átta geyma og get­ur þjónað fjölda kvía í einu.

Fjallað var um pramm­ann í Morg­un­blaðinu á laug­ar­dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: