Mótmæla lokun starfsstöðvar í Ólafsvík

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, er ósáttur við ákvörðun Hafrannsóknastofnunar um …
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, er ósáttur við ákvörðun Hafrannsóknastofnunar um að loka starfsstöðinni í Ólafsvík. mbl.is

Haf­rann­sókna­stofn­un hyggst loka úti­búi stofn­un­ar­inn­ar í Ólafs­vík á Snæ­fellsnesi frá og með ára­mót­um. Þor­steinn Sig­urðsson, for­stjóri stofn­un­ar­inn­ar, upp­lýsti Krist­inn Jónas­son, bæj­ar­stjóra Snæ­fells­bæj­ar, á ný­leg­um fundi þeirra um áformin.

Þetta kem­ur fram í um­fjöll­un Skessu­horns.

Sam­kvæmt vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar er einn starfsmaður með aðset­ur í Ólafs­vík og á Þor­steinn að hafa sagt Kristni frá því að erfiðlega hafi gengið að manna starfs­stöðina, auk þess hafi fjár­magn verið af skorn­um skammti.

„Sam­talið var ágætt þó við vær­um ekki sam­mála,“ hef­ur Skessu­horn eft­ir Kristni sem kveðst hafa komið því áleiðis að hann teldi ákvörðun Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á skjön við stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar um fjölg­un starfa á lands­byggðinni.

Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, á að hafa sagt erfitt að …
Þor­steinn Sig­urðsson, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, á að hafa sagt erfitt að manna starfs­stöðina. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Leita til ráðherra og þing­manna

„Við sögðum þeim að við mynd­um nú ekki taka þessu þegj­andi og lét­um þá vita að við mynd­um biðja um fundi með ráðherra mála­flokks­ins og þing­mönn­um kjör­dæm­is­ins. Hafró hef­ur verið að fá með öllu um 60 millj­ón­ir króna á ári til að reka þessa starf­semi að okk­ar mati þó að í dag sé það ekki merkt sér­stak­lega á fjár­lög­um. En sam­kvæmt upp­reiknuðum samn­ingi sem Sjávar­rann­sókna­setrið Vör gerði við stofn­un­ina er sú tala ekki fjarri lagi, upp­reiknað til verðlags í dag. Þetta eru fjár­mun­ir sem okk­ur finnst blóðugt að hverfi úr okk­ar sam­fé­lagi og enn verra að mönn­um finn­ist það sjálfsagt að fækka störf­um og verk­efn­um úti á landi,“ seg­ir Krist­inn.

Fram kme­ur á vef stofn­un­ar­inn­ar að meðal verk­efna starfs­stöðvar­inn­ar í Ólafs­vík sé „reglu­leg um­hverf­is­vökt­un þar sem rýnt er í grunnstoðir vist­kerf­is­ins með mæl­ing­um á efnaþátt­um og frum­fram­leiðslu. Einnig fara fram rann­sókn­ir á svifþör­ung­um, svif­dýr­um og fæðuvef.  Starfs­menn taka einnig þátt í gagna­söfn­un úr afla sem eru nýtt í stofn­mats­ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Þá eru starfs­menn oft þát­tak­end­ur í ýms­um rann­sókn­um á um­hverf­isáhrif­um af fram­kvæmd­um og nýt­ingu á Breiðafjarðarsvæðinu.“

mbl.is