Veiddu grálúðu með 2.600 kílómetra að baki

Þann 6. september fékk Hafrannsóknastofnun þessa fínu mynd sem sýnir …
Þann 6. september fékk Hafrannsóknastofnun þessa fínu mynd sem sýnir merkingar- og veiðistað grálúðunnar. Mynd/Amanda Barkley

Haf­rann­sókna­stofn­un barst 19. ág­úst fyr­ir­spurn frá skip­verja á Guðmundi í Nesi RE-13 í tengsl­um við merki sem fannst í grá­lúðu sem veidd­ist á Hampiðju­torg­inu um nótt­ina. Í ljós kom að grá­lúðan hafi ferðast nokkuð langt frá upp­haf­leg­um slóðum við Dav­is-sund.

„Ekki reynd­ist merkið vera frá okk­ur og var send fyr­ir­spurn á Haf­rann­sókna­stofn­un­ina á Græn­landi um hvort merkið væri frá þeim. Það reynd­ist ekki vera og því var haft sam­band við Vemco (Innovasea), sem er fram­leiðandi merk­is­ins, hvort að þeir gætu aðstoðað við að hafa uppi á eig­anda þess,2 seg­ir í færslu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Merkið fannst í grálúðu sem togarinn Guðmundur í Nesi RE …
Merkið fannst í grá­lúðu sem tog­ar­inn Guðmund­ur í Nesi RE veiddi. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Þar seg­ir að svar hafi borist 26. ág­úst síðastliðinn og að eig­and­inn sé Nig­el Huss­ey hjá Windsor-há­skóla í Kan­ada. Sá hafði sam­band við Haf­rann­sókna­stofn­un til að afla upp­lýs­ing­ar um fund­arstað.

Grá­lúðan var merkt 18. sept­em­ber 2016 norður af Disko Fan Conservati­on Area í Kan­ada á svæði sem er lokað fyr­ir öll­um veiðum sem snerta hafs­botn­inn. Grá­lúðan var 68 sentí­metr­ar við merk­ingu en ekki fylgdu upp­lýs­ing­ar um stærð þegar hún veidd­ist.

Áætla má að vega­lengd­in í sjó frá staðnum sem grá­lúðan var merkt til staðar­ins sem hún veidd­ist sé um 2.600 kíló­metr­ar.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina