Arnarlax hefur hlotið vottunina Aquaculture Stewardship Certification (ASC) fyrir eldisstöð sína Foss í Arnarfirði, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Um er að ræða alþjóðlega umhverfisvottun fyrir fiskeldi sem fiskeldisiðnaðurinn og World Wildlife Fund for Nature (WWF) þróuðu í sameiningu.
Fram kemur í tilkynningunni að með vottuninni skuldbindur eldisstöðin Foss sig til að draga úr áhrifum á vistkerfi á staðnum, oft umfram það sem lög og reglur gera kröfu um.
„Það er mikil viðurkenning fyrir Arnarlax að hljóta þessa vottun fyrir eldisstöðina okkar í Fossfirði í Arnarfirði enda ströng skilyrði sem þarf að uppfylla. Nú eru öll virk eldissvæði okkar ASC-vottuð og leggjum við mikla áherslu á að starfsemi stöðvanna hafi sem minnst áhrif á náttúruna og lífríkið í kring. Því veitir ASC-vottunin okkur mikla hvatningu í áframhaldandi framfaravinnu í sátt við umhverfi og samfélag,“ segir Silja Baldvinsdóttir, gæðastjóri Arnarlax.