Mörg tilfelli þar sem stýrimaður hefur sofnað

Bátar og skip geta strandað af ýmsum ástæðum, meðal þeirra …
Bátar og skip geta strandað af ýmsum ástæðum, meðal þeirra algengustu er að skipstjórnandi sofni. Myndin er úr safni og tengist því ekki beint. mbl.is/Ólafur Bernódusson

„Það er oft um seinan sem fólk gerir sér grein fyrir þeirri hættu sem stafað getur af syfju og þreytu,“ segir Einar Magnús Magnússon, sérfræðingur á öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu, um skilaboð nýjasta forvarnarspjalds sem gefið er út undir merkjum 12 hnúta og er ætlað sjófarendum.

„Árlega verða mjög alvarleg slys á Íslandi sem rakin eru til þessa og ótal mörg tilfelli þar sem stýrimaður hefur sofnað við stýrið,“ segir hann.

Rekja má 43 skipsströnd við landið á tímabilinu 2000 til 2020 til þess að stjórnandi sofnaði. Í einu tilviki hafði stjórnandi vakað í 40 klukkutíma fyrir strandið.

Veggspjöldin eru gefin út í hverjum mánuði á þessu ári og eru 12 hnútar listi yfir tólf algenga þætti sem geta leitt til slysa eða atvika til sjós.

Veggspjaldið sem nú hefur verið gefið út er það níunda í röðinni og er þar vakin athygli á mikilvægi þess að fólk þekki einkenni þreytu hjá sér og öðrum. Jafnframt að komið sé í veg fyrir þreytu og þær hættur sem af henni stafa fyrir sjófarendur.

Forvarnarveggspjald 9 í röð 12 hnúta.
Forvarnarveggspjald 9 í röð 12 hnúta. Mynd/Samgöngustofa
mbl.is