„Ekki óalgengt að veiðarfæri festist í kóral“

Petrún Sigurðardóttir, líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir hafa verið áhugavert hve …
Petrún Sigurðardóttir, líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir hafa verið áhugavert hve lítið fannst af almennu rusli á hafsbotni. Samsett mynd

„Það sem mér fannst áhuga­verðast var hversu mikið af lín­um við fund­um á Reykja­nes­hrygg og hversu lítið af al­mennu rusli eins og plasti, dós­um og þannig hátt­ar fannst á þess­um svæðum sem við skoðuðum,“ seg­ir Pe­trún Sig­urðardótt­ir, líf­fræðing­ur hjá Haf­rann­sókna­stofn­un, sem hef­ur unnið að sam­an­tekt á skrán­ingu rusls á hafs­botni um­hverf­is Ísland.

Skýrsla um rusl á hafs­botni var birt á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á dög­un­um og mun Pe­trún flytja er­ind­ir „Rusl á hafs­botni við Ísland: Sam­an­tekt á skrán­ingu rusls við kort­lagn­ingu búsvæða á hafs­botni 2004-2019“ í höfuðstöðvun Haf­rann­sókna­stofn­un­ar í Hafnar­f­irði klukk­an 12:30 á morg­un.

„Í raun­inni er ekki skrítið að við fund­um svona mikið af veiðarfær­um þar sem svæðin sem við skoðuðum voru einkum fisk­veiðisvæði þar sem sjó­menn höfðu gefið upp­lýs­ing­ar um að kór­al gæti verið að finna. Það er ekki óal­gengt að veiðarfæri fest­ist í kór­al og grjóti, enda fund­um við mikið af um­merkj­um um það,“ út­skýr­ir hún.

Enn vant­ar mikið af upp­lýs­ing­um

Sam­an­tekt­in vakti tölu­verða at­hygli meðal ann­ars vegna þess að upp­reiknaður meðalþétt­leiki rusls væri hærri um­hverf­is Íslands en til að mynda við Nor­eg eða Evr­ópu. Spurð hvort draga megi ein­hverj­ar álykt­an­ir á grund­velli þessa, seg­ir Pe­trún svo ekki vera.

„Vegna þess hversu lítið svæði við mynduðum og það að þetta voru ein­göngu fisk­veiðisvæði þá er erfitt að draga ein­hverj­ar álykt­an­ir af því eins og er. Við mynd­um helst vilja mynda meira og skoða fleiri svæði áður en við get­um sagt al­menni­lega til um það magn rusl sem er hér á hafs­botni í kring­um landið. Nú höf­um við alla­vega ein­hverja hug­mynd um dreif­ingu og magn veiðarfær­arusls á hafs­botni en það vant­ar líka frek­ari upp­lýs­ing­ar um al­mennt rusl þar sem það er lík­lega í ein­hverju magni nær byggðum, t.d. í Faxa­flóa,“ seg­ir hún.

 Er­indi Pe­trún­ar verður streymt á YouTu­be rás Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

mbl.is