Notuðu villandi fullyrðingar um „vistvænt sjóeldi“

Á umbúðum Norðanfisks var fullyrt að um vistvænt sjóeldi væri …
Á umbúðum Norðanfisks var fullyrt að um vistvænt sjóeldi væri að ræða.

Neyt­enda­stofa hef­ur bannað Norðan­fiski og Fis­herm­an ehf. að nota full­yrðing­ar um „vist­vænt sjó­eldi“ í markaðsetn­ingu sinni þar sem um er að ræða vill­andi full­yrðing­ar. Neyt­enda­sam­tök­in vekja at­hygli á úr­sk­urðinum á heimasíðu sinni.

For­saga máls­ins er sú að sam­tök­un­um barst ábend­ing frá ár­vök­ul­um fé­lags­manni um vill­andi merk­ing­um fyr­ir­tækj­anna.

Í fram­hald­inu sendu Neyt­enda­sam­tök­in kvört­un til Neyt­enda­stofu og fóru fram á að stofn­un­in tæki af­stöðu til þess hvort orðanotk­un Norðan­fisks á „vist­vænu sjó­eldi“ á umbúðum væri vill­andi í skiln­ingi laga um eft­ir­lit með viðskipta­hátt­um og markaðssetn­ingu.

Einnig var send kvört­un vegna full­yrðinga Fis­herm­an ehf sem seg­ir fram­leiðslu sína vist­væna, um­hverf­i­s­væna og sjálf­bæra.

Fyr­ir­tæk­in gátu ekki sýnt fram á að full­yrðing­ar um vist­vænt og sjálf­bært lax­eldi ættu rétt. Full­yrðing­arn­ar eru því vill­andi og bæði fyr­ir­tæk­in brutu gegn lög­um með notk­un þeirra.

„Ólíðandi ref­hvörf“ 

„Neyt­enda­sam­tök­in telja ein­sýnt að orðnotk­un­in „vist­vænt sjó­eldi“ sé afar vill­andi og í raun ólíðandi ref­hvörf. Þannig er sjókvía­eldi bein­lín­is flokkað sem meng­andi iðnaður á vef Um­hverf­is­stofn­un­ar enda fer skólpið sem verður til við fram­leiðsluna beint í sjó­inn. Norska um­hverf­is­stofn­un­in hef­ur metið meng­un­ina af hverju tonni í sjókví á við skólp frá 16 mann­eskj­um. Lax­ar eru t.d. með leyfi fyr­ir 16.000 tonn­um í Reyðarf­irði, sem fram­leiðir þannig skólp á við 256.000 manns. Það get­ur ekki tal­ist vist­vænt,“ seg­ir á vef Neyt­enda­sam­tak­anna.

„Erfðablönd­un villtra stofna er að sama skapi af­leiðing af sjókvía­eldi. Hún hef­ur verið staðfest hér rétt eins og í öll­um lönd­um þar sem sjókvía­eldi er stundað. Hér hef­ur Haf­rann­sókn­ar­stofn­un gefið út „áhættumat erfðablönd­un­ar“. Þar er miðað við að allt að 4% af laxi í ám geti komið úr eldi. Það er í raun sturluð tala, einn af hverj­um tutt­ugu löx­um. Það get­ur ekki tal­ist vist­vænt,“ seg­ir þar jafn­framt.

mbl.is