Fyrirsætan Hailey Bieber er fyrirmynd margra þegar kemur að tísku og snyrtivörum, en hún gerði allt vitlaust í sumar þegar hún sýndi neglur sínar frá Met Gala-hátíðinni. Nú hefur hún gefið fylgjendum sínum enn meiri innsýn inn í snyrtirútínu sína, en í þetta sinn virðist fólk ekki vera jafn hrifið.
Í byrjun september deildi fyrirsætan nýjustu snyrtirútínu sinni á TikTok. „Tilbúin fyrir allt sem fylgir haustinu, þar á meðal brúngljáðar varir,“ skrifaði hún við myndbandið sem hefur valdið miklum usla á miðlinum þar sem Hailey er meðal annars sökuð um menningarnám.
Hailey notaði brúnan varablýant og glært gloss til að ná fram brúngljáðu vörunum. Þó fyrirsætan hafi aldrei haldið því fram að hún hafi fundið upp á lúkkinu minntist hún heldur ekki á þá staðreynd að konur sem eru ekki hvítar hafa verið með sama lúkkið í áratugi.
„Mamma mín og allir frá rómversku Ameríku rokkuðu þessu lúkki í byrjun 2000,“ skrifaði einn notandi við myndbandið.
Í myndbandi, sem hefur þegar fengið 2,7 milljónir áhorfa, segir notandinn Benulus frá því að hún hafi stöðugt fengið neikvæðar athugasemdir um brúngljáðar varir sínar. „Þið eruð alltaf að setja út á varirnar mínar í hvert einasta skipti sem ég set inn myndband. En um leið og hvít kona gerir eins varir, þá verður það að trendi,“ skrifaði hún.
Annar notandi setti út á það að Hailey kallaði lúkkið „brownie“ gljáðar varir og benti á að konur sem eru ekki hvítar hafi lengi þurft að berjast fyrir því að snyrtivörumerki hætti að nefna dekkri tóna eftir mat.