Nýr Þór til Vestmannaeyja á laugardag

Nýtt björgunarskip Vestmananeyinga mun bera nafnið Þór og verður afhent …
Nýtt björgunarskip Vestmananeyinga mun bera nafnið Þór og verður afhent 1. október. Ljósmynd/Landsbjörg

Nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar kom til hafnar í Reykjavík í dag en formleg afhending skipsins verður í heimahöfn þess í Vestmanneyjum laugardaginn 1. október, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu. Þar segir að skipið mun fá nafnið Þór.

Um er að ræða fyrsta skipið af þremur sem Landsbjörg hefur gengið frá kaupum á. Þetta er fyrsti liður í stærra verkefni er snýr að endurnýjun allra 13 björgunarskipa félagsins og er áætlað að með nýjum skipum styttist viðbragðstími Landsbjargar á sjó allt að helming.

Sjóvá hefur veitt 142,5 milljóna króna styrk vegna smíði fyrstu þriggja björgunarskipanna.

„Smíði nýju skipanna er stærsta fjárfesting sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur ráðist í frá upphafi. Svona veglegur styrkur frá Sjóvá er afrakstur áratuga trausts samstarfs, og gerir okkur kleift að hefja smíði fyrstu þriggja skipanna,“ segir Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

„Við viljum þakka Sjóvá fyrir þetta rausnarlega framlag. Það kom inn í verkefnið á afar mikilvægum tímapunkti og gerði það að verkum að við gátum hafið smíði á fyrsta skipinu. Við erum þakklát fyrir traustið sem Sjóvá sýndi okkur með því að leggja svo mikið fram þegar skipin voru aðeins teikningar á blaði,“ segir Kristján.

Hvert á 285 milljónir

Fram kemur í tilkynningunni að hvert hinna þriggja skipa kostar um 285 milljónir króna og var með samkomulag –i sem gert var í janúar 2021 milli ríkis og Landsbjargar – tryggð allt að helmings fjármögnun þessara skipa. Slysavarnafélagið Landsbjörg hafði safnað í nýsmíðasjóð í nokkurn tíma sem tryggði enn frekar getu félagsins til að ráðast í þetta verkefni.

„Með nýjum björgunarskipum verður bylting í viðbragðstíma og aðbúnaði fyrir áhafnir og skjólstæðinga. Skipin skipta miklu máli fyrir öryggi sjófarenda í kringum landið og eru einnig hönnuð með það í huga að geta aðstoðað við björgunarverkefni á landi, s.s. með því að tryggja fjarskipti á fáförnum stöðum ef þörf krefur,“ segir í tilkynningunni

„Við hjá Sjóvá erum stolt og ánægð að geta stutt Landsbjörg í þessu stóra og mikilvæga verkefni. Það er mikið gleðiefni fyrir okkur Íslendinga að fá ný björgunarskip sem munu gjörbylta öryggi sjófarenda á hafinu í kringum landið og þjónusta byggðir þess um leið," segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.

Björgunarbátarnir þrír eru smíðaðir af KewaTec.
Björgunarbátarnir þrír eru smíðaðir af KewaTec. Ljósmynd/Landsbjörg

Næsta skip til Siglufjarðar

Nýju björgunarskipin þrjú eru smíðuð hjá KewaTec í Finnlandi. Áætluð afhending á öðru skipinu er fyrir árslok 2022 á Siglufirði. Smíði á þriðja skipinu hefst síðan í janúar 2023 og afhending á því verður eftir mitt það ár.

Áfram er unnið að fjármögnun tíu björgunarskipa til viðbótar.

mbl.is