Fyrsta nýja björgunarskipið komið til Eyja

Þór kemur til hafnar í Eyjum í dag. Í baksýn …
Þór kemur til hafnar í Eyjum í dag. Í baksýn er Ísfélagsskipið Suðurey. mbl.is/Sigurður Bogi

Nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar var afhent Vestmannaeyingum við hátíðlega athöfn í dag. Skipið sigldi frá Landeyjarhöfn og er það kom í höfn í Vestmannaeyjum var skipið blessað og því gefið nafnið Þór. 

Þetta er fyrsta skipið af þremur sem Landsbjörg hefur fest kaup á – og fjárfestingin er ein sú stærsta og mesta sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur nokkru sinni tekist á hendur.

Ætlunin er að endurnýja allan björgunarskipaflota félagsins á næstu árum, alls þrettán skip.

Sjóva styrkti skipakaupin um 142,5 milljónir króna. Ríkissjóður leggur að öðru leyti til helming þess fjár sem skipið nýja kostar. Áætlað er að viðbragðstími skipa Landsbjargar styttist um helming í flestum tilfellum með nýjum skipum. 

mbl.is