Íslendingar hagnist á auðlindaskatti Norðmanna

Asle Rønning, fráfarandi framkvæmdastjóri norska fiskeldisfyrirtækisins Måsøval AS, telur framleiðslugetu …
Asle Rønning, fráfarandi framkvæmdastjóri norska fiskeldisfyrirtækisins Måsøval AS, telur framleiðslugetu ÍSlands nema 500 þúsund tonnum. Ljósmynd/Måsøval AS

Leiðtog­ar í fisk­eld­is­geir­an­um telja Ísland hagn­ast mest á til­lögu norsku rík­is­stjórn­ar­inn­ar um auðlinda­skatt þar sem hún bæt­ir stöðu Íslands sem framtíðar­vaxt­ar­svæðis grein­ar­inn­ar. Þetta er meðal þess sem fram kom á fjár­festaþingi miðils­ins IntraFish sem fram fór í London á dög­un­um.

„Íslend­ing­ar eru reiðubún­ir til að gera það sem þarf til að byggja upp at­vinnu­grein­ar,“ sagði Asle Rønn­ing, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri norska fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Måsøval AS, á málþing­inu. Måsøval AS fer með meiri­hluta hluta­fjár í eign­ar­halds­fé­lag­inu Ice Fish Farm AS, en dótt­ur­fé­lag þess rek­ur mest­allt fisk­eldi á Aust­fjörðum.

Norska rík­is­stjórn­in til­kynnti 28. sept­em­ber síðastliðinn um þau áform sín að leggja 40% auðlinda­skatt á sjókvía­eldi í Nor­egi. Í kjöl­farið hrundi gengi hluta­bréfa í fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um sem skráð eru í kaup­höll­ina í Osló.

500 þúsund tonn á Íslandi

Rønn­ing sagðist á málþing­inu telja fram­leiðslu­getu Íslands vera að minnsta kosti 500 þúsund tonn af eld­islaxi.

Óljóst er hvernig hann komst að þeirri niður­stöðu, en burðarþol í öll­um þeim fjörðum þar sem heim­ilt er að stunda sjókvía­eldi var sam­an­lagt 144.500 tonn árið 2020, að því er fram kem­ur í skýrslu um stöðu og horf­ur í ís­lensk­um sjáv­ar­út­vegi og fisk­eldi frá ár­inu 2021.

Þá nam há­marks­líf­massi í nýju áhættumati Haf­rann­sókna­stofn­un­ar fyr­ir þessa firði 106.500 tonn­um.

Mun meiri líf­massa er þó hægt að koma í sjókví­ar ef heim­ilað verður að ala fisk inn­an þeirra svæða sem nú eru friðuð frá slíkri starf­semi. Nú á sér stað tölu­verð upp­bygg­ing í land­eldi en held­ur langt er í land þar til sá rekst­ur get­ur skilað fleiri hundruð þúsund tonn­um.

Óheimilt er að stunda sjókvíaeldi á þeim svæðum sem eru …
Óheim­ilt er að stunda sjókvía­eldi á þeim svæðum sem eru inn­an rauðu lín­anna. Skjá­skot/​Stjórn­ar­ráðið
mbl.is