Leggja til 75% minni loðnuafla

Mun minna verður að gera hjá loðnuskipunum á komandi vertíð.
Mun minna verður að gera hjá loðnuskipunum á komandi vertíð. mbl.is/Börkur Kjartansson

Haf­rann­sókna­stofn­un ráðlegg­ur að loðnu­afli vet­ur­inn 2022/​2023 verði ekki meiri en 218 400 tonn, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar. Um er að ræða 45,4% minna magn en gert var ráð fyr­ir í upp­hafs­ráðgjöf en hún nam 400 000 tonn og byggði á magni ókynþroska loðnu í haust­mæl­ing­um 2021.

Þetta er tæp­lega 75% skerðing frá síðustu vertíð en vegna henn­ar nam ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar 869.600 tonn. Íslensku skip­in veiddu þá um 500 þúsund tonn og skilaði afl­inn um 55 millj­örðum króna í út­flutn­ings­verðmæti.

Tekið er þó fram að ráðgjöf­in verður end­ur­skoðuð að lokn­um mæl­ing­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á stærð veiðistofns­ins í janú­ar/​fe­brú­ar eins og afla­regla strand­ríkja fyr­ir stofn­inn ger­ir ráð fyr­ir.

Ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar nú bygg­ir á niður­stöðum berg­máls­mæl­inga á loðnu­stofn­in­um á rann­sókna­skip­un­um Árna Friðriks­syni og Tarajoq á tíma­bil­inu 27. ág­úst til 29. sept­em­ber.

„Mæl­ing á magni ókynþroska loðnu haustið 2021 benti til þess að veiðistofn­inn 2022/​2023 yrði mun stærri en mæl­ing­arn­ar á hon­um núna gefa til kynna. Hins­veg­ar, er hlut­fall eldri ár­gangs í verðandi hrygn­ing­ar­stofni með því hæsta sem sést hef­ur. Stofn­mæl­ing­ar í vet­ur munu varpa skýr­ara ljósi á stærðar­hlut­föll ár­gang­anna frá 2019 og 2020,“ seg­ir í ráðgjaf­ar­skjal­inu.

Náðu ekki nyrst

Í ráðgjaf­ar­skjal­inu seg­ir að niðurstaða stofn­un­ar­inn­ar byggi á um­fangs­mik­illi yf­ir­ferð rann­sókna­skip­anna. Litl­ar taf­ir urðu á leiðangr­in­um vegna veðurs en haf­ís tak­markaði yf­ir­ferð á nyrsta hluta rann­sókn­ar­svæðis­ins.

„Ekki er talið lík­legt að loðna hafi verið á svæðinu sem var sleppt. Stofn­mæl­ing­in hafði frem­ur lág­an breyti­leik­astuðul (CV) þar sem loðnan var nokkuð jafnt dreifð auk þess sem al­mennt var mest af kynþroska loðnu á svæðum með þétta yf­ir­ferð.“

Ekki ráðgjöf um upp­hafsafla­mark 2023/​24

Stærð hrygn­ing­ar­stofns er met­in 763 þúsund tonn og fjöldi ókynþroska fiska var um 41 millj­arður en sam­kvæmt samþykktri afla­reglu þarf yfir 50 millj­arða til að mælt verði með upp­hafsafla­marki fisk­veiðiárs­ins 2023/​2024.

Gögn um niður­stöður ung­loðnu­mæl­ing­anna verða lögð fyr­ir Alþjóðahaf­rann­sókn­aráðið (ICES) sem mun veita ráð um upp­hafsafla­mark vertíðar­inn­ar 2023/​2024.

Frétt­in hef­ur verið upp­færð

mbl.is

Bloggað um frétt­ina