Stofnmæling botnfiska að haustlagi, svonefnt haustrall, hófst 1. október síðastliðinn og stendur yfir næstu vikurnar. Samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun taka tveir togarar, Breki VE og Múlaberg SI, þátt í verkefninu auk rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar.
Togað verður á rúmlega 370 stöðvum umhverfis landið og Árni Friðriksson hefur einnig varið tveimur sólarhringum á Dohrn-banka til þorskmerkinga.
Helsta markmið verkefnisins er að styrkja mat á stofnstærð helstu botnlægra nytjastofna á Íslandsmiðum sem stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum nær yfir og fer fram síðla vetrar á hverju ári.