Leggja til rannsókn á áhrifum hvala á nytjastofna

Hnúfubakar eru meðal þeirra tegunda sem eru mestu afræningjarnir. Afrán …
Hnúfubakar eru meðal þeirra tegunda sem eru mestu afræningjarnir. Afrán hvala á hafsvæði við Ísland, Jan Mayjen og Austur-Grænland er talið vera yfir 13 milljónir tonna. mbl.is/Sigurður Ægisson

Í grein­ar­gerð um stöðu haf- og fiski­rann­sókna sem tek­in var sam­an fyr­ir Svandísi Svavars­dótt­ur, mat­vælaráðherra, er lagt til að efld­ar verði rann­sókn­ir á stækk­andi hvala­stofn­um og hugs­an­leg­um áhrif­um þeirra á stærð nytja­stofna.

Bent er á að óháð framtíðar­til­hög­un hval­veiða um­hverf­is Ísland séu hval­ir áhrifa­mik­ill þátt­ur í líf­keðjunni í haf­inu. Þá hafi í ný­legri alþjóðlegri út­tekt verið talið að afrán hvala á hafsvæðinu Aust­ur-Græn­land/Í​sland/​Jan Mayen sé um 13,4 millj­ón­ir tonna. Langreyður, hrefna, grind­hval­ir og hnúfu­bak­ur eru lang­stærstu af­ræn­ingjarn­ir.

Fjallað er um grein­ar­gerðina sem af­hent var mat­vælaráðuneyt­inu á dög­un­um í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: