Skoða þurfi auknar lögbundnar skyldur útgerða

Í grienargerð um stöðu haf- og fiskirannsókna eru fjöldi tillagna …
Í grienargerð um stöðu haf- og fiskirannsókna eru fjöldi tillagna um breytta umgjörð hafrannsókna. mbl.is/Sigurður Bogi

Skoða þarf hvort leggja megi aukn­ar lög­bundn­ar skyld­ur á út­gerðina til að leggja sitt af mörk­um við rann­sókn­ir. Ann­ars veg­ar í formi gagna, eins og til að mynda með ra­f­rænu eft­ir­liti veiða og ra­f­ræn­um aðgangi að veiði- og vinnslu­gögn­um, og hins veg­ar í formi skipa­tíma.

Þetta er meðal þess sem lagt er til í ný­út­kom­inni grein­ar­gerð um stöðu haf- og fiski­rann­sókna og leiðir til að efla þær, sem af­hent var Mat­vælaráðuneyt­inu á dög­un­um.

Þar seg­ir að meðal ann­ars að þurfi að efla rann­sókn­ir til muna og er lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að veita fyr­ir­tækj­um skatta­leg­an af­slátt eða skatta­lega íviln­un fyr­ir fram­lag til rann­sókn­a­starf­sem­inn­ar, til að mynda að telja slíkt fram­lag sem hluta veiðileyf­a­gjalds þeirra.

Fjallað er nán­ar um til­lög­ur grein­ar­gerðar­inn­ar í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: