Af 43 löxum sem veiddir hafa verið á Vestfjörðum og rannsakaðir vegna gruns um uppruna úr eldi reyndust 28 vera eldislaxar. Hægt er að rekja 24 þeirra til kvíar númer 11 á eldissvæði Arnarlax við Haganes í Arnarfirði, en gat uppgötvaðist á nótarpoka kvíarinnar í ágúst á síðasta ári. Verið er að rannsaka nánar uppruna fjögurra eldislaxa til viðbótar.
Eftir að eldislaxar veiddust í Mjólká í Arnarfirði í ágúst á þessu ári hóf Fiskistofa umfangsmikla leit að fiskum í ám á svæðinu.
Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.