Fluttu út eldisafurðir fyrir 5 milljarða

Aldrei hafa úflutningsverðmæti eldisafurða í september verið meiri.
Aldrei hafa úflutningsverðmæti eldisafurða í september verið meiri. Ljósmynd/Icelandic Salmon

Flutt­ar voru út eldisaf­urðir fyr­ir fimm millj­arða króna í sept­em­ber og er um að ræða stærsta sept­em­ber­mánuð í út­flutn­ings­verðmæt­um eldisaf­urða frá upp­hafi. Á fyrstu níu mánuðum árs­ins nam út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða 33,4 millj­örðum króna sem er 22% aukn­ing frá sama tíma­bili í fyrra.

Þetta má lesa í grein­ingu Radars­ins sem bygg­ir á bráðabirgðatöl­um Hag­stofu Íslands fyr­ir sept­em­ber.

Þar er vak­in at­hygli á að aukn­ing­in sé enn meiri ef tekið sé til­lit til geng­is­breyt­inga og þá er hún rúm 29%. Vísað er til þess að gengi krón­unn­ar var að jafnaði 4% sterk­ara á fyrstu 9 mánuðum árs­ins en á sama tíma­bili í fyrra.

Í bráðabirgðatöl­um Hag­stof­unn­ar eru eldisaf­urðir til­greind­ar í heild en ekki eft­ir teg­und­um eða magni. Þó má gera ráð fyr­ir að aukn­ing­una megi rekja til aukn­ingu í lax­eldi eins og und­an­far­inna mánuði, að því er seg­ir í grein­ing­unni.

„Þannig jókst út­flutn­ings­verðmæti á laxi um 30% á milli ára á föstu gengi á fyrstu 8 mánuðum árs­ins. Hlut­deild lax af út­flutn­ings­verðmæt­um eldisaf­urða í heild var um 83% á fyrstu 8 mánuðunum sam­an­borið við tæp 77% á sama tíma­bili í fyrra. Þessa aukn­ingu í út­flutn­ings­verðmæt­um má nán­ast al­farið rekja til hækk­un­ar afurðaverðs, enda stóð út­flutt magn svo til í stað á milli ára. Þannig hef­ur markaðsverð á laxi náð sögu­leg­um hæðum á ár­inu og hef­ur að jafnaði verið hærra á þessu ári en það hef­ur áður verið.“

Útflutn­ings­verðmæti sil­ungs, sem er að mestu bleikja, hef­ur dreg­ist sam­an um 22% á fyrstu átta mánuðum árs­ins. „Það má al­farið rekja til sam­drátt­ar í út­fluttu magni, en hækk­un afurðaverðs veg­ur þó eitt­hvað upp á móti.“ Hið sama á við senegal­fúru en út­flutn­ings­verðmæti teg­und­ar­inn­ar dregst sam­an um 5% en út­flutt magn um 14%.

Í til­felli frjóvgaðra hrogna jókst út­flutn­ings­verðmæti þeirra um 9% og út­flutn­ing­ur að magni til hef­ur skroppið sam­an um tæp 2%. „Það er því nokkuð ljóst að hækk­un afurðaverðs hef­ur verið ráðandi í aukn­ingu út­flutn­ings­verðmæta eldisaf­urða á fyrstu 8 mánuðum árs­ins,“ seg­ir í grein­ingu Radars­ins.

mbl.is