Leynilögga tilnefnd til EFA

Hannes Þór Halldórsson hefur gert það gott sem markvörður í …
Hannes Þór Halldórsson hefur gert það gott sem markvörður í knattspyrnu og haslar sér nú völl sem kvikmyndaleikstjóri. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Kvikmyndin Leynilögga, eftir Hannes Þór Halldórsson, er ein þriggja mynda sem tilnefndar eru til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem besta gamanmyndin. Greint var frá þessu í morgun, 19. október. 

Verðlaunin verða afhent hér á landi í desember og er það Evrópska kvikmyndaakademían sem stendur fyrir hátíðinni. El buen patrón frá Spáni og La fracture frá Frakklandi eru hinar tvær myndirnar sem tilnefndar eru. 

mbl.is